Fara í efni

Marokkókryddaðar kjúklingabringur með sólþurrkuðum tómat og kóríander-Couscous

Í þessum rétti má einnig notast við kjúklingalæri og jafnvel leggi, einnig hægt að bæta aðeins í chilíið til að fá meiri hita fyrir þá sem eru fyrir sterkan mat.
Marokkókryddaðar kjúklingabringur
Marokkókryddaðar kjúklingabringur

Marokkókryddaðar kjúklingabringur  með sólþurrkað tómat og kóríander-Couscous.

Aðalréttur fyrir 4

4 stk kjúklingabringur (eða ca.800g -1kg)

1 dl Mangó chutney

1/2 dl góður appelsínusafi (sykurlaus)

1/2 dl teryakisósa

½ dl Olívuolía

2 msk möndluflögur

1 tsk laukduft

½ tsk cummin

¼  tsk cayennepipar

½ tsk kanill

½ tsk kóríanderduft

½ tsk turmeric

1 dós hreinn jógúrt (2 dl)

Aðferð:

Setjið kjúklingabringurnar í eldfastmót, setjið restina af hráefninu í matvinnsluvél og maukið vel saman, hellið yfir kjúklingabringurnar og nuddið vel utanum þær , leyfið þessu að marinerast í lágmark 1 klst.  Steikið kjúklingabringurnar í  200° heitum ofni í ca. 35-40 mín eða þar til kjarnhitinn nær 70°c látið standa úti í nokkrar mínútur. Þá er safinn af kjúklingnum (það sem eftir er í forminu)sigtaður í skál  og jógúrtinn blandaður saman við, smakkað til með smá sítrónusafa, salti og pipar og borið fram kjúklingnum sem sósa.(það gæti þuft að bæta 2-3 msk af vatni í formið til að fá meiri sósu.

Couscous:

2 dl góður eplasafi (sykurlaus)

2 dl vatn

Smá grænmetiskraftur (10 g)

½ tsk kóríanderduft

½ tsk karrýduft

200 g heilhveiti-coucous

4 msk sólþurrkað tómatpestó í krukku (eða heimalagað, sjá uppskrift í „sósur og meðlæti“)

2 msk rúsínur

1/3 blaðlaukur (200 g) gróft saxaður

100g grilluð rauð paprika (skorin í strimla)

½ búnt kóríander (gróft saxað)

Aðferð:

Sjóðið uppá eplasafanum, vatninu, grænmetiskraftinum, kóríanderduftinu og karrýinu, blandið saman Coucous-inu, sólþurrkuðu tómatpestóinu,rúsínunum, blaðlauknum, paprikunni og kóríandernum saman í skál og hellið sjóðandi vökvanum yfir, hrærið létt í þessu og plastið síðan vel yfir og leyfið að standa í ca. 10 mín eða þar til couscous-ið hefur dregið í sig allan vökvan, hrærið þá aðeins í þessu með gaffli til að losa allt vel í sundur og smakkið til með salti og pipar.