Fara í efni

Sláturgerð með Nóatúni - Ódýr heimilismatur og það fer að detta í sláturtíð

Þegar þú tekur slátur færðu mikinn mat fyrir lítinn pening auk þess sem sláturgerð er mikil skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Minnsta eining til sláturgerðar sem hægt er að kaupa í Nóatúni er eitt slátur en úr því færðu um 25 matarskammta. Flestir taka 4-5 slátur og eiga því nægan mat í frystikistunni fram á vetur.

Þú færð varla ódýrari mat en slátur og fjölskyldan skemmtir sér saman við íslenskar hefðir. 

Saga sláturins

Í gamla daga merkti slátur allt ætilegt af skepnunni; kjöt, innmat, hausa og lappir.  Á síðustu öld merkti orðið slátur hins vegar allan innmat; blóð, haus og lappir. Nú orðið þegar talað er um að taka slátur er hins vegar átt við að búa til lifrarpylsu og blóðmör.  

Hefðbundnar sláturuppskriftir hafa lítið breyst í gegnum tíðina  þó nú orðið sé 
notaður miklu minni mör en áður. Eins þurfti oft að drýgja mjölið þegar mjölskorts gætti og voru þá notuð fjallagrös að hluta eða öllu leyti.  Áður fyrr var allt slátur sett í súr og þó nýjar geymsluaðferðir hafi rutt sér til rúms þá kjósa margir þessa gömlu aðferð og telja súrmat sannkallað lostæti. 

Líttu við í næstu Nóatúns verslun og kauptu allt sem þig vantar fyrir sláturgerðina. 
Skoðaðu myndböndin hér : 

Blóðmör 
Lifrarpylsa 

Þá sérðu hvað það er auðvelt að taka slátur! 

Góða skemmtun og gangi þér vel!

Starfsfólk Nóatúns.

Fengum þessar upplýsingar af síðu noatun.is