Fara í efni

RAW Mömmukaka með döðlukaramellu - Birnumolar

Bragðið svíkur engan og útlit kökunnar ekki heldur!
Geggjuð hráfæðiskaka frá Birnu Varðar
Geggjuð hráfæðiskaka frá Birnu Varðar

Kaka þessi er í raun þriggja laga. Botninn er úr pekanhnetum, möndlum og döðlum. Þá kemur fyllingin sem minnir um margt á ostaköku. Loks er þetta svo toppað með döðlukaramellu, pistasíuhnetum og ögn af dökku súkkulaði.

Bragðið svíkur engan og útlit kökunnar ekki heldur! 

Þessa bara veeeeerðið þið að prófa!

Botn

  • 80 g pekanhnetur
  • 120 g möndlur
  • 12-14 ferskar döðlur

,,Ostaköku"-fylling

  • 2 bananar
  • 120 g kasjúhnetur 
  • 200 g döðlur
  • 2 msk hunang
  • ½ dl olía til mýkingar (ég kýs isio eða repjuolíu)
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2-3 msk kakóduft

,,Crunchy" döðlukaramella

  • 8 döðlur
  • 2-3 tsk hunang
  • 1 msk hnetusmjör (fínt eða gróft)
  • ¼ tsk salt
  • 1 msk olía
  • 1/2 tsk vanilludropar

Annað

  • 10-12 pistasíuhnetur
  • 70 % súkkulaði

  

Aðferð 

1) Vinnið döðlur, möndlur og pekanhnetur vel saman. Þrýstið jafnt niður með hreinum fingrum í hringlaga form eða mót. Setjið í frysti.

2) Setjið allt sem á að fara í fyllinguna NEMA KAKÓ saman í matvinnsluvél og vinnið vel saman. Áferðin á að vera silkimjúk. 

3) Skiptið fyllingunni í tvær skálar. Hrærið kakóinu saman við fyllinguna í annarri skálinni. Skiptið svo fyllingunum yfir til skiptis svo það komi fram skemmtileg litaskipting. Brjótið nokkrar pistasíuhnetur og ýtið laust ofan í fyllinguna. Frystið í 6-8 klst.

4) Þegar fyllingin er orðin vel frosin er best að losa kökuna úr forminu og færa hana á disk eða platta. 

5) Vinnið allt sem á að fara í döðlukaramelluna GRÓFT saman en ekki í algjöra sósu.... þið viljið halda smá döðlubitum eftir. Skiptið jafnt yfir kökuna.

6) Bræðið 70 % súkkulaði yfir vatnsbaði og dreypið pent yfir

7) Geymið í frysti og takið út áður en hún er borin fram 

 

Eitt orð: NAMM

Annað orð: AMEN

Takk fyrir!