Fara í efni

Thai Mango Basil salat með ólífu olíu

Konungur ávaxtanna eins og Mangó er oft kallaður er góður í hvaða formi sem er.
Svakalega gott, mangó mangó
Svakalega gott, mangó mangó

Konungur ávaxtanna eins og Mangó er oft kallaður er góður í hvaða formi sem er.

Hvort sem það er mangó karrí, mangó hrísgrjón eða mangó chutney, nú eða mangó saman við salat. Allt þetta er dásamlegt á bragðið.

Mangó er fullt af vítamínum, lágt kólestról magn, berst við krabbameinsfrumur og...er nammi fyrir húðina!

Hérna er svakalega gott salat sem einmitt inniheldur mangó meðal annars.

Hráefni:

1 meðal stór skál af fersku salati

1 mangó, má ekki vera of þroskað

½ til 1 bolli af gúrkum í sneiðum

¼ bolli af þurr ristuðum kasjú hnetum

1 tsk af Thai Chilly, skorið afar fínt

Basli dressing:

15 til 20 basil lauf, eða 25 ef þau eru smá

1 grænn laukur, niður skorinn smátt

3 tsk af ferskum lime safa

1 tsk af salti

1 tsk af extra virgin ólífu olíu

2 tsk af púðursykri

1 Chilly saxað afar smátt

Hreinsaðu grænmetið vel undir vatni og settu í salat skál. Bættu svo öllu hinu grænmetinu saman við.

Skerðu mangóið í tvennt (sitthvoru megin við steininn) og skerðu hann svo í kubba.

Bættu mangó kubbum í salatið.

Fyrir dressinguna, settu öll hráefnin í matarvinnsluvél og láttu blandast þangað til þetta er orðið eins og þykk sósa.

Notið dressingu eftir smekk.

Uppskrift fengin af: healthmeup.com