Fara í efni

Lúxus ísskáps grautur með súkkulaðibragði frá Eldhúsperlum

Saðsamur og bráðhollur grautur.
Lúxus ísskáps grautur með súkkulaðibragði frá Eldhúsperlum

Það er svo notalegt að detta í rútínu aftur að fríi loknu og partur af því hjá mér er sannarlega að borða reglulega morgunmat og þá svona um það bil á sama tíma, sem er annað en við gerðum í fríinu.

Ísskáps grautar þykja okkur voða góðir og það er sérlega notaleg tilhugsun þegar maður er í loftköstum að græja sig á morgnana að þá liggi tilbúinn morgunmatur í ísskápnum.

Þessi grautur er algjört sælgæti ef þið eruð hrifin af súkkulaðibragði og minnir jafnvel dálítið á súkkulaðikökudeig, enda er bara algjör óþarfi að sjokkera líkamann of hratt eftir sældarlíf frísins og fara beint í grænu djúsana..! 

Lúxus ísskáps grautur með súkkulaðibragði (fyrir einn mjög svangan, annars tvo)

  • 2 dl haframjöl
  • 2 msk chiafræ
  • 1 1/2 msk hreint kakó
  • 1/4 tsk sjávarsalt
  • 3 dl möndlumjólk (magnið fer líka eftir smekk, hversu þykkan graut þið viljið)
  • 6-8 dropar vanillustevía – líka hægt að nota aðra sætu t.d. smá hlynsíróp eða hunang eftir smekk, gott að smakka sig áfram.

Aðferð:

Hrærið saman í skál öllum þurrefnum. Bætið þá möndlumjólk og sætuefni saman við. Látið standa í ísskáp yfir nótt. Athugið að grauturinn þykknar við að standa. Skreytið með berjum og t.d. hampfræjum.

Uppskrift af vef eldhusperlur.com