Fara í efni

Kókos kúlur án samviskubits

Kókoskúlur þurfa ekkert að vera eintóm óhollusta. Og þessar eru æði með kaffinu :)
Kókos og rommkúlur.
Kókos og rommkúlur.

Öll þurfum við nú smá nami :)
Og ekki er það verra ef það er nú bara hollt í þokkabót.

Kokos og rommkúlur.

350gr Döðlur
100gr Pekan hnetur
50gr Gott ósætt kakó ( ég nota sollu )
1 1/2 tsk. romm dropa ( má vera meira ef maður vill sterkt bragð...eða nota aðra dropa )
2 msk. Kokoshveiti
2-4 msk. vatn ( af döðlunum)

Síðan auka kókoshveiti eða mjöl til að velta kúlunum upp úr.

Aðferð.

Leggja döðlurnar í bleyti í svona klukkutíma.
Hella svo af þeim vatninu ....en halda eftir nokkrum matskeiðum til að mýkja upp í deginu.
Setja Döðlurnar í matvinnsluvél og vinna vel á þeim.
Bæta svo hnetunum og öllu hinu útí og vinna í mjúkann deig klump 
Má ekki vera of blautt því þarf að ná að velta þeim í kúlur og setja utan um Kókoshveiti eða kókosmjöl .

Þessar eru alveg nammi :)