Fara í efni

Indverskur rófuréttur í kókosmjólk

Indverskur rófuréttur í kókosmjólk

Frábær grænmetis réttur. 

Góður einn og sér eða sem meðlæti. 

Hráefni:

2 stk rófur, meðalstórar, skornar í litla munnbita
1 stk laukur,  smátt saxaður
2 tómatar skornir í munnbita
6 sveppir skornir í fjóra bita
1 dós af kókósmjólk
Smá olía til steikingar
Feskur kóríander og 2 lúkur af fersku spínati
1 hvítlaukur smátt saxaður
Smá ferskur engifer, rifinn og safinn notaður í réttinn
1 tsk broddkúmen
Hnífsoddur af cayennapipar
1 tsk turmerik
Smá salt og 2 msk sweet chilli sósu



Það eru til ótúrlega margir Panner réttir sem eru hver öðrum betri. Panner er sérstakur ostur sem líkastur er kotasælu. Í stað osts hef ég oft  notað tófú sem er mjög gott en einnig rótargrænmeti. Í þessu tilfelli eru rófur notaðar.

Leiðbeiningar:

Létt steikja þurrkryddin í olíunni og setja grænmetið saman við ásamt söxuðum hvítlauk og malla við vægan hita í ca 20 mín þá að blanda spínatinu saman við og síðan kókósmjólk og engifersafanum. Smakkið til réttinn og kryddið. Handfylli af ferskum kóríander er söxuð og sett saman við. Skreytið síðan með lime bátum. Þessi réttur er mjög góður með fisk og kjöti.

Höfundur uppskriftar: 
Helga Mogensen