Fara í efni

Heslihnetu súkkulaðismjör frá mæðgunum

Einn sunnudag fyrir ekki svo löngu var vöfflupartý í kortunum og við ákváðum að gera okkur enn glaðari dag og útbúa súkkulaði-hnetusmjör til að bera fram með vöfflunum, ásamt ferskum ávöxtum og kókosrjóma. Svona súkkulaði-heslihnetusmjör er algjört lúxusálegg og minnir jafnvel pínkulítið á heimagert nutella, bara minna sætt-bragð og meira hnetubragð og auðvitað úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Heslihnetu súkkulaðismjör frá mæðgunum

Einn sunnudag fyrir ekki svo löngu var vöfflupartý í kortunum og við ákváðum að gera okkur enn glaðari dag og útbúa súkkulaði-hnetusmjör til að bera fram með vöfflunum, ásamt ferskum ávöxtum og kókosrjóma.

Svona súkkulaði-heslihnetusmjör er algjört lúxusálegg og minnir jafnvel pínkulítið á heimagert nutella, bara minna sætt-bragð og meira hnetubragð og auðvitað úr lífrænt ræktuðu hráefni. 

Við mæðgur erum sælkerar inn við beinið og finnst gaman að gæða okkur á góðgæti af og til, eins og örugglega flestum. Við erum hrifnastar af því að útbúa sætindin okkar sjálfar frá grunni, bæði vegna þess að þá þurfum við að hafa aðeins meira fyrir því að úða þeim í okkur, en líka vegna þess að þá getum við valið hráefnið sjálfar, og veljum þá helst lífrænt ræktað ef það er hægt. Við getum ákveðið að nota aðeins minna af sykri en hefðbundið er, því flest sætindi mega alveg við því án þess að það komi mikið niður á bragðinu. En stærsta ástæðan er þó sú að okkur finnst bara svo gaman að dunda í eldhúsinu og gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn í smá stund. 

Við ristuðum heslihnetur í ofninum og losuðum svo aðeins hýðið frá með því að nudda yfir með viskastykki

Skelltum öllu í matvinnsluvél

Gott er að stoppa annað veifið og skafa niður með hliðunum

 

Tilbúið þegar silkimjúkt og glansandi

Súkkulaði-heslihnetusmjör

2 b heslihnetur, ristaðar
½ b kókospálmasykur 
¼ b + 1 msk kakóduft
smá sjávarsaltflögur

Aðferð

  1. Ristið heslihneturnar við 160°C í 8-10 mín
  2. Setjið heslihneturnar á hreint viskustykki og nuddið hýðið af
  3. Setjið í matvinnsluvél ásamt kókospálmasykrinum, kakóduftinu og saltinu
  4. Látið vélina ganga í u.þ.b. 4-6 mín, stoppið annað veifið og skafið niður hliðarnar
  5. Tilbúið þegar orðið silkimjúkt og kekkjalaust

Njótið!

 

Af vef maedgurnar.is