Fara í efni

Glútenlaus kínóagrautur með pekanhnetum

Undanfarið hefur orðið mikil vakning á glútenlausu fæði og hér er einn mjög einfaldur morgunverður sem er í miklu uppáhaldi á mínu heimili þessa dagana.
Glútenlaus kínóagrautur
Glútenlaus kínóagrautur

Glútenlaus kínóagrautur með pekanhnetum - fyrir 2

Innihald:

1 bolli kínóaflögur (það er líka alveg hægt að nota haframjöl eða Tröllahafra í staðinn en þá er grauturinn ekki laus við glúten)
1 bolli möndlumjólk
1 bolli sjóðandi heitt vatn
¼ tsk sjávarsalt
½ - 1 banani – skorinn í sneiðar
4-8 döðlur – smátt saxaðar
¼ bolli pekanhnetur – smátt saxaðar
1 tsk kókospálmasykur – ef vill

Aðferð:

Kínaflögur, möndlumjólk, vatni og salti blandað saman í pott.  Sett á meðahlita og þegar suðan kemur upp er potturinn tekinn af hellunni, lokið sett á og látinn standa í 5- 10 mín. (Grauturinn þykknar við þetta).

Grautinum skammtað í skálar og banana, döðlum og pekanhnetum dreift yfir. 
Smá kókospálmasykri dreift yfir ef vill. 

Njótið!

Heilsukveðja,
Ásthildur Björns