Fara í efni

Súkkulaði smoothie toppaður með súperfæði

Þvílík dásemdar byrjun á degi hverjum.
Súkkulaði smoothie toppaður með súperfæði

Þvílík dásemdar byrjun á degi hverjum.

Fullkominn morgunverðar smoothie en hann má einnig nota í eftirrétt því súkkulaðið er svo seðjandi að sykurlöngunin hverfur eins og dögg fyrir sólu.

Þessi drykkur er toppaður með kókóskurli,chia fræjum og grænum súperhjörtum (sjá neðar í uppskrift) ásamt hrá kakóbitum.

Undirbúningstími eru um 15 mínútur, eldunartíminn eru um 10 mínútur og uppskrift er fyrir 1 drykk.

 

Hráefni:

Súkkulaði smoothie duft

2 frosnir bananar

1 tsk af maca dufti

2 msk af hrá kakóbitum

3 döðlur

1 tsk vanilla extract

1 bolli af kókósvatni

Og á toppinn:

1 tsk af rifinni kókóshnetu

1 tsk af chia fræjum

5 græn súperhjörtu

1 tsk hrá kakóbitar

Hvernig á að gera græn súperhjörtu:

Uppskrift er fyrir 15 hjörtu.

1 vel þroskaður banani

3 döðlur

½ bolli af spínat

½ bolli af grænkáli

½ bolli vatn

Leiðbeiningar:

  1. Gerið hjörtun deginum áður. Blandið hráefnum saman í blandara og setjið í hjartalaga sílikon form og frystið í 4 tíma eða yfir nótt.
  2. Blandið öllu hráefni í smoothie, fyrir utan hrá kakóbitana. Látið hrærast mjög vel saman.
  3. Bætið nú hrá kakóbitum saman við og notið pulse takkann nokkrum sinnum.
  4. Hellið í stórt glas eða krukku
  5. Toppið með kókós,chia fræjum, grænu súperhjörtunum og hrá kakóbitum.

 

Drekkið strax og njótið vel!