Fara í efni

Smoothie með jarðaberjum, grænkáli og hnetusmjöri – súper prótein bomba og fullt af C-vítamíni

Sjúklega góður heilsudrykkur.
Smoothie með jarðaberjum, grænkáli og hnetusmjöri – súper prótein bomba og fullt af C-vítamíni

Þessi drykkur er algjört dúndur á morgnana, fullur af próteini og C-vítamíni.

Það má bæta fleiri tegundum af berjum saman við hann og einnig banana ef þú ert í stuði.

Uppskrift er fyrir einn drykk.

Hráefni:

1 bolli af ósætri soja mjólk

1 bolli af frosnum jarðaberjum

1 bolli af söxuðu grænkáli

1 msk af góðu hnetusmjöri

1 msk af hunangi

1 tsk af vanillu extract

2-4 ísmolar

Leiðbeiningar:

Blandið sojamjólk, jarðaberjum, grænkáli, hnetusmjöri, hunangi, vanillu og ísmolunum í blandara og látið þeytast vel saman.

Drykkur á að vera mjúkur.

Njótið vel!