Fara í efni

Mean green smoothie fyrir þig

Hér er ein frábær uppskrift af einum grænum með mangó og steinselju.
Mean green smoothie fyrir þig

Hér er ein frábær uppskrift af einum grænum með mangó og steinselju.

Já, steinselju, það er hægt að nota hana í fleira en bara til að skreyta diska.

Málið er að steinselja er afar næringarík. Í einu bolla sem er c.a 60gr er 100% RDS af A, C og K-vítamínum. Einnig er steinselja afar rík af fólínsýru.

Uppskrift er fyrir einn.

 

 

 

Hráefni:

2 bollar af mangó í bitum

½ sítróna, án hýðis

½ gúrka

¼ bolli af steinselju

1 stilkur af sellerí

2 bollar af baby spínat

230 ml af vatni

Leiðbeiningar:

Settu vatnið í blandarann og svo mjúku ávextina.

Síðan fer allt sem er grænt og skelltu í botn í um 30 sekúndur eða þar til drykkur er mjúkur.

Súper næringaríkur og bragðgóður.

Njótið vel!