Fara í efni

HEILSUDRYKKUR – Banana-hafra prótein smoothie

Stjarna bananans skín skært í þessum kraftmikla drykk.
HEILSUDRYKKUR – Banana-hafra prótein smoothie

Stjarna bananans skín skært í þessum kraftmikla drykk.

Súper últra skammtur af kalíum sem er svo nauðsynlegt fyrir líkamann.

Afar góður drykkur fyrir æfingu, hann kemur jafnvægi á blóðsykurinn og kemur í veg fyrir vöðvakrampa.

Uppskrift fyrir einn.

 

 

Hráefni:

2 msk af höfrum

2 bananar

2 skeiðar af próteini

1 bolli af ósætri möndlumjólk

½ bolli af köldu vatni

¼ tsk af kanil

4 ísmolar

Leiðbeiningar:

Settu allt hráefnið í blandarann, en þó vökvann fyrst. Blandaðu á þrusu hraða til að allt sé nú mjúkt og ljómandi bragðgott.

Njótið vel!