Fara í efni

Grænn með kókós, mangó, grænkáli og lime

Hljómar vel í mínum eyrum.
Grænn með kókós, mangó, grænkáli og lime

Hljómar vel í mínum eyrum.

 

Mangó er súper ríkt af beta-carotene og trefjum. Í þessum drykk má finna 10,5 gr af trefjum.

Grænkál er ríkt af próteini og frábær uppspretta af kalki og járni.

Uppskrift er fyrir einn. Drykkur númer 24.

 

 

 

 

 

Hráefni:

1 mangó – án hýðis og steins

½ lime – án hýðis og steina

½ frosin banani

3 bollar af grænkáli

Kókósmjólk eftir smekk – má nota aðra mjólk

Leiðbeiningar:

  1. Byrjaðu á að setja vökvann í blandarann og svo mjúku ávextina og láttu hrærast vel saman.
  2. Bættu nú öllu grænu saman við og blandaðu á góðum hraða í 30 sekúndur eða þar til drykkur er mjúkur.

Þessi uppskrift er frekar stór þannig að það má geyma afganginn sem ekki er drukkinn í lokuðu íláti í ísskáp í 24 tíma.

Njótið vel!