Fara í efni

Fjólublár og kraftmikill berja smoothie

Þessi berja smoothie er fullur af dásamlegum næringarefnum, andoxunarefnum og próteini.
Fjólublár og kraftmikill berja smoothie

Þessi berja smoothie er fullur af dásamlegum næringarefnum, andoxunarefnum og próteini.

Það er gott að byrja daginn á berjadrykk, hann fyllir þig orku sem endist þér inn í daginn.

Uppskrift er fyrir 2 drykki.

Hráefni:

½ bolli af ferskum eða frosnum hindberjum

½ bolli af ferskum eða frosnum bláberjum

6 stór jarðaber, helst fersk en mega vera frosin

½ bolli af kókósvatni

½ bolli af vanillu grískum jógúrt

Má sleppa: 1 msk af hunangi – eða eftir smekk

 

Leiðbeiningar:

Vertu viss um að blandarinn þinn sé þrusu kraftmikill fyrir þennan drykk.

Settu öll hráefni í blandarann, vökvann ávallt fyrst og látið blandast á mesta hraða í um 3 mínútur eða þar til drykkur er mjúkur.

Ef þér finnst hann of þykkur þá má bæta meira af kókósvatni saman við.

Drekkist kaldur. Geymist í ísskáp í allt að 10 tíma.