Fara í efni

Bananaberjabomba

Bleikur gleðigjafi í morgunsárið.
Bananaberjabomba

Afar hollt, gott og fljótlegt.  Bleikur gleðigjafi í morgunsárið. 

 

Hráefni: 

3 frosnir niðurskornir bananar 
2 bollar frosin ber, t.d. jarðaber, hindber, brómber, bláber (Berry Mix)
2/3 bolli kókosvatn

Takið hýðið af vel þroskuðum bönunum, skerið niður og setjið í frysti.
Frosnir bananar, ber og kókosvatn sett í mixarann og hrært.

Njótið~

Uppskrift fengin af Facebook síðu Food & Good