Fara í efni

Þú þarft aðeins tvö hráefni í þessa - súper hollar pönnukökur

Þú þarft einungis tvö hráefni í þessar girnilegu pönnukökur, egg og banana.
Banana og eggja pönnukökur
Banana og eggja pönnukökur

Þú þarft einungis tvö hráefni í þessar girnilegu pönnukökur, egg og banana. 

Ekki nóg með að þær eru súper hollar og góðar, þá eru þær lausar við glúten, hveiti og allan sykur. 

Bananinn gefur þér þetta sæta bragð sem við sækjumst eftir svo þú þarft ekkert að draga fram hunang eða sýrop til að hella yfir þær. 

 
Þú þarft aðeins þetta:
  • 1 banana
  • 2 egg

Stappar bananum vel saman við eggin og skilur eftir eins litla banana klumpa og þú getur. Notaðu kókósolíu eða ólífuolíu við steikinguna. Ekkert smjör hér.

Svo er bara að njóta þess að borða góðar og hollar pönnukökur. 

 

Fylgdu okkur á Facebook