Fara í efni

Nesti og nýir skór - frá mæðgunum

Nú er mikil ferðahelgi framundan. Margir leggja upp í langferð, sumir fara í bústað, aðrir í styttri dagsferðir, fjallgöngur eða skreppa í huggulega lautarferð.
Nesti og nýir skór - frá mæðgunum

Nú er mikil ferðahelgi framundan. Margir leggja upp í langferð, sumir fara í bústað, aðrir í styttri dagsferðir, fjallgöngur eða skreppa í huggulega lautarferð.  

Okkur mæðgum finnst nestið alltaf vera hluti af ferðasjarmanum. Það er svo mikil stemning í því að útbúa eitthvað gott til að taka með, finna fallegan stað til að stoppa á og njóta matarins úti í náttúrunni. Fylla lungun af fersku lofti og njóta útsýnisins.

Við höfum gaman af því að útbúa girnilegar samlokur, sleppum hugmyndafluginu lausu og pökkum allskyns útgáfum í nestiskörfuna. Svo hellum við uppá gott lífrænt te/kaffi í brúsa og þá er ekki eftir neinu að bíða.

 

9 skemmtilegar samloku samsetningar:

  • Lífrænt hnetusmjör + epli + tamari möndlur
  • Hummus + papríka + þurrkaðar ólífur
  • Kryddjurtapestó + vel þroskaðir tómatar
  • Ostsneið (t.d. uppáhalds vegan osturinn) + gúrka + radísur + balsamic edik
  • Avókadósalat + rauðlaukur (sjá uppskrift neðar)
  • Rautt pestó + súrar gúrkur + sinnep + semisecchi tómatar
  • Spicy mayo + ofnbakað grænmeti, t.d. sætar kartöflur og eggaldin
  • Lífrænt mayo eða cashew mayo + bakaðar rauðrófur + sjávarsalt
  • Rautt pestó + avókadó + þurrkaðar ólífur 

 

Tilvalið er að nýta afganga eins og ofnbakað grænmeti frá því deginum áður í samlokugerðina. Okkur finnst líka æðislegt að útbúa góðar sósur eða pestó til að smyrja inní samlokurnar, eða taka með og nota með grillmatnum í ferðinni. (Spicy mayo er hrikalega gott með nánast hverju sem er, líka inn í samlokur). 

Salöt eru síðan alger klassísk í samlokur. Margir eru vanir túnfisksalati og rækjusalati, við erum meira í því að útbúa salöt úr jurtaríkinu. Til dæmis þetta ljúffenga avókadó salat sem er í miklu uppáhaldi. 

Avókadó salat

Uppskriftin

 
Sósan
50g furuhnetur, lagðar í bleyti
2 avókadó, afhýdd og skorin í bita
3 msk sítrónusafi
4 döðlur
1 tsk laukduft
1 tsk chiliflögur
1/2 tsk sjávarsaltflögur

 
Bitarnir
1 dl möndlur, smátt saxaðar (gott að rista m/smá tamarisósu)
3 sellerístilkar, skornir í mjög litla bita
1 avókadó, afhýtt og skorið í litla bita
1 vorlaukur, smátt saxaður
2 msk ferskur kóríander, smátt saxaður


Aðferðin

  1. Maukið allt hráefnið í sósuna saman í blandara eða matvinnsluvél. 
  2. Hellið yfir bitana og blandið saman.
  3. Smakkið til með salti og svörtum pipar.

Góða ferð og njótið helgarinnar!

Af vef maedgurnar.is