Fara í efni

Boost eftir Heilsuborgina og út í góða veðrið.

Boost eftir góða hreyfingu er málið :)
Sumardrykkur sem kætir.
Sumardrykkur sem kætir.

Eftir að hafa tekið vel á því í Heilsuborginni í morgun var bara að spæna heim og skella í smá gleði :)
Elska að fá mér svona gleðidrykk eftir að hafa svitnað í poll og hitnað upp úr öllu valdi!!
Lífið er ljúft.


Boost.

2 msk. Spiru Tein Vanillu Protein.
2 dl. frosin jarðaber
4 dl. frosið mangó
2 dl. frosin Bláber
3cm engifer
lúka Spínat
3 gulrætur
1 frosin banani
1 msk, Chia fræ
Vatn 
3 fersk Jarðaber á toppinn :)

Síðan er bara að koma sér út í góða veðrið og njóta :)