Fara í efni

Berjabrauð

Berjabrauð
Berjabrauð

Innihald: / 2 dl maísmjöl / 1/2 dl hörfræ (mulin í kaffikvörn) / 1 msk psyllium husks 3 tskvínsteinslyftiduft / smá salt / 3 dl möndlu- eða hrísmjólk / 3-4 msk kókosolía / 1 dl frosin hindber.

  1. Hitið ofninn á 250gr.
  2. Blandið saman öllum þurrefunum.
  3. Blandið saman kókosolíunni og mjólkinni og hellið saman við þurrefnin.
  4. Látið deigið standa í ca. 5-10 mínútur.
  5. Bætið varlega nokkrum berjum við deigið en passið að liturinn smiti ekki með því að vera að hræra mikið í deiginu eftir að berin eru komin út í.
  6. Setjið í form og bakið í ca. 12-15 mínútur.

Þetta fallega brauð er ég búin að gera nokkrum sinnum. Mér finnst betra að setja það ekki í of djúpt form, þ.e.a.s. það er betra að brauðið sé í þynnra lagi. Ótrúlega gott nýbakað brauð með uppáhalds berjunum mínum.

Meira á www.ljomandi.is