Fara í efni

Mangó safi er svo ferskur og hollur

Ég tengi mangó við sumarið. Þessi fallegi guli ávöxtur bragðast afar vel og eins og hann er alltaf kallaður “The King of Fruits” að þá er hann hlaðinn hollustu.
Ferskur mangó safi er dásamlegur
Ferskur mangó safi er dásamlegur

Ég tengi mangó við sumarið. Þessi fallegi guli ávöxtur bragðast afar vel og eins og hann er alltaf kallaður “The King of Fruits” að þá er hann hlaðinn hollustu.

Upplýsingar um næringu

Það er mikilvægt að skilja allar upplýsingar um næringu sem býr í mangó. Vegna þess að mangó er ávöxtur þar sem að kaloríufjöldinn miðast við stærð ávaxtarins. Meðal stórt mangó fyllir um einn bolla af ávextinum og eru það um 100 kaloríur, 3 gr af trefjum og 23 gr af náttúrulegum sykri og alveg heill hellingur af vítamínum og steinefnum.

Ef þú ætlar að djúsa mangó þá skiptir máli hversu stóran ávöxt þú velur upp á næringargildið. Ef þú velur að kaupa mangó safa út í búð skaltu lesa vel utan á umbúðirnar og vera viss um að safinn innihaldi hátt hlutfall af mangó safa, frekar en viðbættan sykur eða aðrar tegundir af ávaxtasafa.

Vítamínin

Ertu með flensu eða kvef? Þá getur mangó safi hjálpað þér. Bolli af safanum inniheldur allt frá 60 til 100% af daglegum skammti af C-vítamíni og um 40 til 50% af daglegum skammti af A-vítamíni. Þessi tvö vítamín eru einnig afar góð fyrir tennur og góm, augun, taugarnar og fleira.

Í mangó er einnig folate, um 20% af ráðlögðum dagsskammti. Folate styrkir hjartað. Mangó er hár í trefjum en safinn sjálfur er ekki eins hár í trefjum, en hefur þó eitthvað. Og eins og við vitum, þá eru trefjar afar mikilvægar fyrir meltinguna.

Blóðsykurinn

Þar sem mangó og mangó safi innihalda náttúrulegan sykur og trefjar styður hann vel við eðlilegt blóðsykurmagn í líkamanum. Ertu t.d þreytt eftir langan dag? Það getur oft verið merki um að blóðsykurinn sé í lægra lagi. Fáðu þér glas af mangó safa og þá ættir þú að hressast.

Heimildir: healthmeup.com