Fara í efni

Súkkulaði, rauðvín og ást

Að borða dökkt súkkulaði, drekka rauðvín og vera í heilbrigðu ástríku sambandi er gott fyrir hjartað.
hæfileg blanda af súkkulaði, rauðvíni á ást
hæfileg blanda af súkkulaði, rauðvíni á ást

Að borða dökkt súkkulaði, drekka rauðvín og vera í heilbrigðu ástríku sambandi er gott fyrir hjartað.

"Það eru mismunandi kenningar á bak við hvers vegna þetta væri góð blanda" segir hjartasérfræðingurinn Julie Damp hjá Vanderbilt stofnuninni.

Fólk sem er í hjúskap eða er í nánu heilbrigðu sambandi hefur tilhneigingu til að vera ólíklegra til að reykja, er líkamlega virkara og er líklegra til að hafa vel þróað félagslegt tengslanet, auk þess sem þessir einstaklingar eru einnig líklegri til að lifa við minni streitu og kvíða í sínu daglega lífi, er haft eftir henni.

"Það er til kenning um að fólk sem er í ástríkum samböndum upplifi tauga-hormónabreytingar sem hafa jákvæð áhrif á líkamann, þar með er talið hjarta og æðakerfið" segir Dr. Damp og útskýrir að það séu ákveðin hormón í líkamanum sem séu breytileg eftir því hversu mikil streitu og kvíða einkenni einstaklingurinn lifir við.

Einnig segir Dr. Damp að þetta hafi ekki verið að fullu sannað, en hugmyndin gengur út á að það að vera í sambandi sem er jákvætt og ástríkt getur haft jákvæð áhrif á hjarta og æðakerfið til lengri tíma litið.

Í raun hafa rannsóknir sýnt að tengsl eru á milli átaka eða neikvæðni og aukinnar áhættu á kransæðasjúkdómum.

Rannsóknir benda einnig til að dökkt súkkulaði og rauðvín séu góð fyrir hjartað, í hæfilegu og hófstilltu magni.

Dökkt súkkulaði inniheldur flavoníða, sem eru andoxunarefni. Andoxunarefni hafa jákvæð áhrif á mörg mismunandi kerfi líkamans og þar á meðal hjarta og æðakerfi. Virðist styrkurinn í kakóinu þ.e því dekkra sem súkkulaðið er því meira er af flavíníðum sem koma að gagni.

"Sýnt hefur verið fram á að dökkt súkkulaði hafi góð áhrif á blóðþrýsting, blóðsykur og bætir blóðrennsli í æðum í tengslum við hvernig þær víkka og slaknar á þeim" segir Damp.

Frekari rannsókna er þörf til að vita nákvæmlega hvaða tegund af súkkulaði og hversu mikið af því er mest gagnlegt, en rannsóknir hafa sýnt að fólk sem borðar súkkulaði oftar en einu sinni í viku virðist vera í minni hættu á að fá hjartasjúkdóma og heilablóðfall, borið saman við fólk sem borðar súkkulaði sjaldnar.

Flavoníðar eru einnig til staðar í rauðvíni. Margar rannsóknir hafa sýnt að hófleg áfengisneysla, sem er einn drykkur á dag fyrir konur og 1-2 fyrir karlmenn, tengist lægri tíðni hjarta og æðasjúkdóma.

Þó varar Dr. Damp við því að óyggjandi sannanir séu hugsanlega ekki til staðar og hvetur fólk sem ekki drekkur að byrja ekki að drekka vegna verndandi áhrifa rauðvíns.

Já, hér höfum við uppskriftina að góðu og hamingjuríku lífi sem virðist vera hæfileg blanda af súkkulaði, rauðvíni á ást.

Grein tekin af hjartalif.is