Fara í efni

Þekkir þú Granateplið (Pomegranate) ?

Granateplið er ávöxtur sem er afar ríkur í næringarefnum og gerir það þennan ávöxt mjög eftirsóttan út um allan heima.
Granateplið er súperfæði
Granateplið er súperfæði

Granateplið er ávöxtur sem er afar ríkur í næringarefnum og gerir það þennan ávöxt mjög eftirsóttan út um allan heima.

Granateplið á uppruna sinn að rekja til Norður Indlands, Pakistan, Íran og Afganistan. Það vex einnig í Malasíu, Suður Asíu, Kaliforníu, Armeníu og tropical Afríku.

Ávöxturinn er afar leðurkenndur viðkomu að utan og getur hann verið appelsínugulur, rauður og jafnvel fjólublár. Að innan er granateplið fullt af bleikum fræjum sem eru safarík og sæt.

Staðreyndir um næringu í Granateplum

Í granateplum er meira af andoxunarefnum en í öðrum ávöxtum, flokka má hann með súperfæðinu.

Granatepli eru afar há í C-vítamíni, um 100ml sem er 16% af ráðlögðum dagskammti.

Einnig eru granatepli há í K-vítamíni. K-vitamín er afar gott fyrir heilsu beina og B5 vítamín hjálpar líkamanum að vinna úr próteini, kolvetnum og fitu.

Granatepli innihalda einnig manganese en það er efnið sem formar beinin. Einnig inniheldur eplið kalíum sem er afar gott fyrir frumur líkamans og jafnar út vökva.

Og áfram er upptalið, phosohorus, magnesíum, kalk, zink og járn. Kosturinn við granatepli er að það er lítil sem engin fita í því og ekkert kolestról.

Það eru um 130-150 kaloríur í einu granatepli þar sem að 105 kaloríur eru fræin innan í ávextinum.

Fræin sem eru inn í granatepli eru há í kaloríum því þau innihalda ómettaða olíu, sykur og kolvetni en einnig er afar mikið af trefjum og próteini í þessum fræjum.

Granatepi eru líka góð fyrir húðina

Endurnýjar frumur – granatepli ver innra og ytra lag húðarinnar með því að endurnýja húðfrumurnar. Þetta stuðlar að “viðgerð” á skemmdri húð og bætir blóðflæðið verulega.

Virkar sem vörn gegn sólinni – að borða granatepli gefur húðinni efni sem að ver hana gegn geislum sólarinnar. Það er samt mælt með að nota sólarvörn þó þú borðir granatepli. Olían í eplinu inniheldur andoxunarefnið ellagic sýru sem vinnur gegn æxlum og ver húðina gegn húðkrabbameini.

Hægir á öldrun – granatepli getur hjálpað til við að hægja á ellikerlingu. Má þar nefa svo kallað aldursbletti, fínar línur og hrukkur en þessar húðskemmdir eru oft orsökin af sólböðum.

Húðin verður unglegri – granatepli hjálpa húðinni að haldast mjújkri og að viðhalda kollageninu. Þá verður húðin stinn, mjúk og ungleg.

Þurr húð – granatepli eru afar oft notuð í vörur fyrir húðina. Eplin hafa molecular byggingu sem nær niður í innsta lag húðarinnar og hentar fyrir allar húðtýpur.

Þau eru góð fyrir heilsuna

Granatepli eyða sindurefnum úr líkamanum. Hátt hlutfall andoxunarefnisis hydrolysable tannins og polyphenols vinna gegn sindurefnum sem oft safnast saman í líkamanum.

Ver hjartað – granatepladjús getur virkað eins og blóðþynnir og stuðlar einnig að heilbrigðum æðum. Að drekka glas af granatepladjús á dag lækkar kólestról og dregur úr hættunni á hjartasjúkdómum.

Berst gegn krabbameinsfrumum – andoxunarefnin í granateplum eru afar virk gegn sumum tegundum af krabbameini og má þar nefna brjósta, blöðruhálskirtils og húðkrabbameini.

Styrkir beinin – ensím hemlar í granatepladjúsi geta komið í veg fyrir skemmdir á brjóski. Einnig er það afar gott í baráttunni við beinþynningu.

Eykur matarlyst – börn sem hafa litla matarlyst ættu að drekka glas af granatepladjúsi til að örva matarlystina.

Blóðleysi -  hátt hlutfall járns í granateplum hækkar hemoglobin í blóðinu og hjálpar til við að laga blóðleysi.

Góð aðstoð við þyngdartapi – fólk sem fær sér granatepli fyrir æfingu finnur fyrir töluverðum mun á orku við æfingar og af því að granateplið er hreinsandi að þá styður það við þyngdartap.

Fyrir karlmenn

Dregur úr áhættunni á getuleysi -  fyrir þá sem eru í hættu á að fá krabbamein í blöðruhálskirtil, getuleysi eða æðakölkun að þá ættu þeir að drekka granatepladjús daglega til að draga úr þessari hættu. Háa hlutfall andoxunarefnanna í granateplum ver æðarnar gegn kölkun sem síðar gæti leitt til getuleysis.

Fyrir konur

Ertu að reyna að verða ófrísk – granatepladjús er hátt í niacin, fólín sýru, kalíum, kalki, C-vítamíni, járni og trefjum og hjálpar allt þetta töluvert, bæði konum sem eru að reyna að verða ófrískar eins og konum sem eru þegar ófrískar. Að drekka granatepladjús á meðgöngu getur dregið úr krömpum og svefnerfiðleikum sem oft eru á meðgöngu.

Heimildir: med-healt.net