Fara í efni

Andoxunarefni

Andoxunarefni finnast náttúrlega í ýmsum matvælum, þá sérstaklega í ávöxtum og grænmeti. C-vítamín, E-vítamín og beta-karotín
Andoxunarefni - doktor.is
Andoxunarefni - doktor.is

Andoxunarefni eru efni sem hindra eða hlutleysa svokölluð sindurefni og koma í veg fyrir skaða af þeirra völdum.

Sindurefni myndast við oxun í efnahvörfum líkamans og geta þau valdið skaða í lifandi frumum og skemmt t.d. matvæli.  

Andoxunarefni eru einnig kölluð þráavarnarefni af þessum ástæðum.

Andoxunarefni finnast náttúrlega í ýmsum matvælum, þá sérstaklega í ávöxtum og grænmeti. C-vítamín, E-vítamín og beta-karotín  eru þekktustu andoxunarefnin. 

Margar rannsóknir  hafa verið gerðar á því hvort þessi efni geti mögulega styrkt ónæmiskerfið og  jafnvel  komið í veg fyrir sjúkdóma eins og til dæmis krabbamein. Niðurstöður eru bæði misvísandi og ekki afgerandi en þó bendir ýmislegt til þess að sérstaklega E-vítamín geti minnkað hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum.

Einnig eru vísbendingar um að andoxunarefni geti  dregið úr hættu á æðakölkun og blóðtappa og minnkað hrukkumyndun. Flestir eru þó sammála um að neyta þarf þessara efna beint úr fæðunni til þess að þau komi að einhverju gagni en ekki sem tilbúinni viðbót eins og í töfluformi.  

Frekari rannsóknir eru í gangi varðandi virkni andoxunarefna og verður fróðlegt að fylgjast með niðurstöðum þeirra. Á meðan við bíðum eftir þeim niðurstöðum er löngu sannað að það að borða  ferska ávexti, grænmeti og gróft kornmeti sem innihalda andoxunarefni í ríkum mæli gerir okkur gott og hjálpar til við ýmsar varnir líkamans.

Heimildir:

http://www.hsph.harvard.edu/nutritionsource/antioxidants/

http://www.nlm.nih.gov/medlineplus/antioxidants.html

Birt í samstarfi við doktor.is 

Höfundur greinar:

Guðrún Gyða Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingur

 

Allar færslur höfundar