Fara í efni

Skjaldkirtillinn

Skemmtileg og fræðandi frásögn eftir Valdís Sigurgeirsdóttir sem fyrir mörgum árum greindist með vanvirkan skjaldkirtil.
Valdís Sigurgeirsdóttir
Valdís Sigurgeirsdóttir

Skjaldkirtillinn

Fyrir mörgum árum greindist ég með vanvirkan skjaldkirtil. Ég fór strax á lyf og hef tekið þau samviskusamlega síðan. Ég hefði alveg viljað prufa aðrar lausnir áður en ég fór að taka inn lyf en ég var bara ekkert að spá í svoleiðis hluti þá og treysti mínum lækni að sjálfsögðu. Það er mjög erfitt þolinmæðisverk að hætta að taka inn lyf við vanvirkum skjaldkirtli og þegar maður er búinn að vera á þeim svona lengi eins og ég (+10 ár) þá er það nánast ógerlegt (1). En það er margt hægt að gera til að hjálpa skjaldkirtlinum að vinna sína vinnu vel hvort sem maður er að taka lyf eða ekki og eitt af því er að velja vel hvað við látum ofan í okkur.

Skjaldkirtillinn stjórnar efnaskiptum líkamans, hitastigi, orkuframleiðslu, kolvetna- og fituefnaskiptum. Hann fær örvun frá heiladingli (TSH) um að framleiða hormónin T4 og T3. Meirihluti T4 umbreytist í T3 í lifrinni þannig að eðlileg starfsemi hennar er mjög mikilvæg. Lifrin geymir járnbúskap líkamans og ég læt alltaf mæla járn þegar ég fer í blóðprufur sem ég geri reglulega til að fylgjast með skjaldkirtlinum. Það er líka gott að láta mæla B-12 í leiðinni. Nauðsynlegt er að nýrnahetturnar starfi eðlilega og í kínverskum lækningum tengist skjaldkirtillinn nýrum.

Helstu einkenni vanvirks skjaldkirtils eru þreyta, orkuleysi, kuldatilfinning, kaldar hendur og fætur, skapsveiflur, pirringur, þurr húð, hárlos, hæg líkamsstarfsemi eins og blóðflæði og svefnleysi svo eitthvað sé nefnt (1).

Fleiri konur þjáist af vanvirkum skjaldkirtli en karlar. Auk erfða eru algengar orsakir joðskortur, truflun á starfsemi heiladinguls og skjaldkirtils, umhverfis- og loftmengun og fleira (1).

Árið 2007 ákvað ég að fara í Heilsumeistaraskólann og tók nokkra kúrsa þar. Þar kynntist ég alls konar óhefðbundnum aðferðum og prufaði alls konar mataræði. Þó svo ég væri að taka lyfin var ég alltaf mjög þurr á fótleggjunum en þarna fór ég að taka inn olíur í miklu meira magni en ég hafði áður gert og húðin snarlagaðist. Þarna kynntist ég líka alls kyns jurtum og notkun þeirra og nú tek ég jurtakúra öðru hvoru til að örva lifrina, nýrun og æðakerfið.

En hvaða mat á að borða og ekki borða?

Það er til hafsjór af greinum á netinu um þennan sjúkdóm og af nægu að taka en hér ætla ég að segja frá því sem hefur reynst mér best að nota og forðast.

Mataræði okkar þarf að innihalda fullt af sinki, selen og joði til að framleiða ensím sem umbreyta T4 í T3. Sínk finnst t.d. í lambakjöti, eggjum, hnetum og fræjum og sjávarfangi. Selen vinnur með E-vítamíni og finnst t.d. í tómötum, brokkolíi, hveitikími og klíði, kjúklingi, þara, hvítlauk og ýmsu grænmeti. Brasilíuhnetur eru pakkaðar af selen og bara 3 á dag geta gefið þér ráðlagðan dagsskammt (1). Joð finnst mest í sjávargróðri eins og sölum, fiski þá helst laxi og eggjum. T.d. er hægt að nota kombu-þara í súpur eða sjóða það með baunum til að draga úr loftmyndandi áhrifum þeirra (2).

Í sumum fæðutegundum er efni sem kallast goitrogen sem hindrar upptöku joðs og þar með virkni skjaldkirtilsins. Þessi matvæli eru spínat, rósakál, hvítkál, blómkál, brokkolí, grænkál, hnúðkál, ferskjur, perur, jarðarber, sinnepslauf, ýmsar hnetur, radísur og soja. Á einum stað segir að ef þú ert að borða meira en fjóra bolla á viku af þessum fæðutegundum hráum þá hefur það líklega áhrif á skjaldkirtilinn. En goitrogen eyðast að mestu við eldun og þess vegna er í lagi að borða þetta eldað (1). Sumar grænmetistegundir eru þyngri í maga en aðrar og fyrir þá sem eru með lélega meltingu og lágar magasýrur gæti líka verið betra að elda þessi matvæli. Alla vega þá styður þetta það sem kom út úr mælingu hjá mér hjá Matthildi Þorláksdóttur en ég veit ekkert hvort það var út af lélegri meltingu eða skjaldkirtlinum. Hún sagði mér að það væri betra fyrir mig að elda þessar fæðutegundir frekar en að borða hráar. Áður en ég fræddist um þetta var ég að mínu mati að ofnota spínat og jarðarber án þess að gera mér grein fyrir því, því bæði á að vera svo hollt. Að sjálfsögðu eru spínat og jarðarber holl og allt grænmeti hefur lækningamátt en það er engin lýgi að ég finn mun á mér eftir að ég dró verulega úr neyslunni. Ég ætla samt ekkert að hætta að nota þessar fæðutegundir heldur vera meira vakandi hversu mikið ég nota og hvernig mér líður af þeim. Hér er mjög góður listi yfir nokkrar fæðutegundir sem hafa áhrif á skjaldkirtilinn.

Erfðabreytt og ógerjað soja og afurðir úr soja eru í ótrúlega mörgum matvælum og geta haft slæm áhrif á skjaldkirtilinn. Ógerjaðar sojavörur eru t.d. sojamjólk og tofu en gerjaðar, lífrænar sojavörur eru t.d. misotempeh og natto. Mér finnst misosúpa frábær en hitt hef ég ekki smakkað. Ég nota t.d. ekki sojasósu heldur tamarisósu í staðinn því hún er óerfðabreytt og búin til úr miso (gerjuðum sojabaunum).

OG sykur er eitur fyrir þá sem eru með vanvirkan skjaldkirtil: “Sugar leads to binding of the thyroid hormone making it unavailable to the body (hypothyroidism results)” (2).

Stundum tek ég inn Ashwaganda en það er ayurvedísk jurt sem hjálpar til gegn streitu með því að draga úr kortisólsmagni en ójafnvægi kortisóls í nýrnahettunum hefur áhrif á myndun TSH og þá einnig T4 og T3. Mjög andoxunarrík. Astaxanthin er líka frábær andoxari.

Ég reyni að muna eftir að fá mér brenninettlute og kamillute og ég nota mikið engifer, hvítlauk, turmeric og kókosolíu við eldamennskuna.

Þungmálmar leynast allsstaðar í umhverfinu, gera frumunum erfitt fyrir og það er erfitt að eyða þeim úr líkamanum. Þungmálmar geta komið úr álpottum, ílátum úr áli, álpappír, svitalyktaeyði, málningu og úr bensíngufum (þegar þú dælir á bílinn). Aðrir þungmálmar eru t.d. blý, nikkel og kopar. Til að hjálpa til tek ég stundum inn Chlorella eða grænt duft sem inniheldur chlorella, fer reglulega í ræktina, gufu og hot yoga. Úthreinsun málma eykur efnaskipti frumanna og minnkar álag á nýru, lifur og úthreinsunarlíffæri eins og húðina. Ég fer líka oft í Epsom saltbað. Ég bý það til sjálf úr epsom salti, sjávarsalti og ilmkjarnaolíum. Þú getur nálgast yndislegt baðsalt hjá mér ef þú hefur áhuga á því. Epsom salt inniheldur magnesíum og róar því taugakerfið, er vöðvaslakandi, bólgueyðandi og hreinsar sogæðakerfið. Það dregur líka úr mjólkursýru eftir erfiða æfingu og stundum þegar krakkarnir mínir kvarta eftir erfiðar æfingar hjá þeim set ég salt í baðið þeirra og þau elska það. Sjávarsaltið inniheldur steinefni sem ganga inn í húðina og næra líkamann. Að fara í Epsom saltbað er snilld eftir flug fyrir flugfólk:O)

Ég nota mikið ilmkjarnaolíur og gæti talað endalaust um þær. Ég kaupi þær helst frá Young Living. Kraftur þeirra er stórmerkilegur og uppáhalds er Thieves sem er flensuolía og virkar á allt. Pepperminter frábær við kvefi og krakkarnir mínir elska Peace and Calming fyrir svefninn. Það er líka til olía sérstaklega fyrir innkirtlastarfsemina og heitir Endoflex. Fást í Olíulindinni.

Ég hef einu sinni farið á hugleiðslunámskeið og gerði það núna í janúar 2014. Ég fór á námskeið hjáHugarfrelsi og mæli eindregið með því. Það var kl. 21 einu sinni í viku og ég kom alltaf svoleiðis sultuslök heim og svaf eins og grjót. Að fara á hugleiðslunámskeið er frábært fyrir fólk með skjaldkirtlisvandamál því skjaldkirtillinn er í hálsstöðinni og í hugleiðslunni er unnið með orkustöðvarnar. Ég fer pottþétt aftur á námskeið hjá þeim og Hugarfrelsi er líka með hugleiðslunámskeið fyrir börn sem ég ætla virkilega að skoða.

Áður en ég hætti langar mig aðeins að tala um rafmagn og rafbylgjur. Ég er þeirrar skoðunar að öll þessi rafmagnstæki dragi úr orkunni okkar og við erum þess vegna endalaust þreytt. Við erum endalaust í tölvunni, með iPad, iPod, iPhone. En það er ekki bara það heldur líka þessi venjulegu rafmagnstæki sem við erum hætt að spá í en eru alltaf í sambandi. Fyrir nokkrum árum fékk ég þá hugmynd að láta rafsviðsmæla heima hjá mér. Ástæðan fyrir því að ég fékk svona mælingu heim var að maðurinn minn vaknaði alla morgna úrvinda. Í mælingunni kom í ljós að akkúrat þar sem hann svaf í rúminu sköruðust einhverjar línur (mynduðu kross) sem ég kann ekki að útskýra. Út um allt eru nefnilega einhver jarðfræðileg streitusvið sem hafa áhrif á heilsu manna. Þetta var fixað og 2-3 dögum seinna nefndi hann við mig að hann finndi mun á sér sem er ótrúlegt því hann trúir ekki á neitt svona. Ég ætti líka alveg erfitt með að trúa á eitthvað svona en ég geri það nú því ég sá sjálf breytinguna. Sonur vinkonu minnar sem benti mér á að láta mæla hjá okkur var komin með lítinn skallablett aðeins 19 ára. Hann svaf einnig á svona krossi. Eftir mánuð var skallinn horfinn. Núna ríf ég allt úr sambandi ef ég er ekki að nota það eins og brauðristina, blandarann og svo framvegis. Að vakna við klukkuna í farsímanum er búið og hann geymdur lengst frammi í eldhúsi. Ég henti rafmagnsklukkunni, keypti batteríisklukku og henti líka náttlömpunum með halogenperunum. Ég á enn pínu erfitt með að muna eftir að slökkva á routernum :O/ Þegar ég flyt mun ég aftur láta gera svona mælingu því nú veit ég að þetta skiptir miklu máli heilsunnar vegna.

Ég vona innilega hvort sem þú ert með heilbirgðan skjaldkirtil eða vanvirkan að þú hafir fundið eitthvað nýtt hér sem mun hjálpa þér að líða ljómandi vel :O)

xoxo Valdís.

Þér er velkomið að deila þessu. Njóttu!

Valdís Sigurgeirsdóttir, www.ljomandi.is
Ef þú vilt hafa samband við mig er netfangið mitt: valdis@ljomandi.is