Fara í efni

Eplasnarl - dásamlegur djús

Svo ferskur og einfaldur með aðeins fjórum innihaldsefnum.
Uppáhalds djúsinn minn.
Uppáhalds djúsinn minn.

Hér er komin uppáhalds djúsinn, afar góður fyrir magann, inniheldur mikið af trefjum sem koma úr eplunum.

Myntan dregur úr uppþembu og sítrónurnar eru hlaðnar C-vítamíni.

 

 

 

 

 

Innihald: 

4 græn epli / 3-5 cm engiferrót / 30 blöð fersk mynta / 1/2 – 1 lime.

Aðferð: 

Allt sett í safapressuna og best að pressa myntublöðin og engiferið milli eplanna.

Þetta er einn uppáhalds djúsinn minn. Svo ferskur og einfaldur með aðeins fjórum innihaldsefnum.

Ég fékk þessa uppskrif senda frá Telmu Matt á fitubrennsla.is. Telma er algjör heilsusnillingur og er með frábæra facebook síðu.

Valdís Sigurgeirsdóttir, www.ljomandi.is - valdis@ljomandi.is