Fara í efni

Hrátt kaldpressað alvöru villiblóma hunang

Við erum með um 12 tegundir af hráu kaldpressuðu hunangi frá mismunandi upprunalöndum. Einnig erum við með drottiningar hunang fyrir fullorðna og börn.
Alvöru hunang frá Uppskeran
Alvöru hunang frá Uppskeran

Við erum með um 12 tegundir af hráu kaldpressuðu hunangi frá mismunandi upprunalöndum. Einnig erum við með drottiningar hunang fyrir fullorðna og börn. 

Hunang hefur verið notað til lækninga öldum saman og notuðu forn Egyptar, Grikkir og Rómverjar hunang í þeim tilgangi. Hunang var einnig notað sem sætuefni. Rómverskir læknar notuðu hunang sem svefnmeðal í þá daga, á meðan að Hippocrates, oft kallaður faðir læknisfræðinnar, hrósaði hunangi mikið fyrir lækningarmátt þess. Hann notaði hunang við húðvandamálum, meiðslum og sárum. Á sömu tímum, notuðu forn-Egyptar hunang til að lækna ský á auga, opin sár, skurði og bruna.

Hrátt hunang inniheldur glúkósa og fruktósa, sem eru einsykrur, A-vítamín, beta-carotín, B-vítamín og vítamínin C, D, E og K. Einnig eru ýmis steinefni í hunangi s.s. magnesíum, sulfur, fosfór, járn, kalk, chlorine, potassíum og iodine. Einnig inniheldur hrátt hunang mikið af lifandi ensímum, sem að eru nauðsynleg fyrir líkamsstafsemina. Það er mjög bakteríudrepandi og hefur verið sannað að engin baktería geti lifað í hráu hunangi, það gefur til kynna að það sé sótthreinsandi.

Hunang hefur góð áhrif á alla líkamsstarfsemi, það leysist upp í vatni og er frábær valkostur hvort heldur er í teið þitt, sem sætuefni í smákökurnar eða sem græðandi smyrsl á húðina, á sár, exem eða sem mýkjandi á psoriais.

Hunang er mjög gott við hálsbólgu og særindum í hálsi og ef þú ert íþróttamaður og ert að leita að náttúrulegum orkukrafti, þá er hráhunang málið, sem þekkt er fyrir að gefa mjör fljótt eftirinntöku, orku og kraft í líkaman.

Athugið þó að nota eingöngu kaldpressað, lífrænt ræktað hunang. Ef hunang hefur verið hitað yfir 40 gráður er búið að skemma góðu ensímin sem hjálpa til við niðurbrot hunangsins. Hrátt hunang ætti að vera til á öllum heimilum.

HÉR má lesa meira um vörur frá Uppskeran á Facebook.