Fara í efni

Drekktu þennan fyrir aukna brennslu

Síðustu vikur höfum við verið að skrifa um brennslu og efnaskipti og hvernig þú getur aukið brennsluna þína. Í dag ætlum við að halda áfram á svipuðum nótum, ásamt því að gefa eina góða uppskrift af boosti sem heitir “Boost fyrir brennsluna” Mismunandi fæðutegundir hafa mismunandi áhrif á líkamann og eins og þú líklega veist er kalóría ekki bara kalóría. 500 kalóríur af ávöxtum og grænmeti stútfull af vítamínum og steinefnum hafa allt önnur áhrif á líkamann þinn en 500 kalóríur af snickers sem dæmi
Drekktu þennan fyrir aukna brennslu

Síðustu vikur höfum við verið að skrifa um brennslu og efnaskipti og hvernig þú getur aukið brennsluna þína. Í dag ætlum við að halda áfram á svipuðum nótum, ásamt því að gefa eina góða uppskrift af boosti sem heitir “Boost fyrir brennsluna”.

Mismunandi fæðutegundir hafa mismunandi áhrif á líkamann og eins og þú líklega veist er kalóría ekki bara kalóría. 500 kalóríur af ávöxtum og grænmeti stútfull af vítamínum og steinefnum hafa allt önnur áhrif á líkamann þinn en 500 kalóríur af snickers sem dæmi.

Ávextir og grænmeti fyrir brennsluna

Grænmeti sem hefur góð áhrif á brennslu líkamans eru t.d laufgrænt grænmeti. Þau eru rík af járni sem styður við rauðu blóðkornin í líkamanum. Járn og próteinið hemoglóbín vinna saman við að bera súrefni um líkaman, en hemoglóbín er inn í rauðu blóðkornunum. Þau flytja einnig næringu og hormón um allan líkamann þannig að þú getir starfað eftir bestu getu. Laufgrænt grænmeti getur t.d verið spínat, grænkál eða klettasalat.

Ávextir og grænmeti ríkt af C vítamíni 

C-vítamín ríkir ávextir og grænmeti geta haft áhrif á þyngdartap. Rannsókn sem birtist í tímaritinu “Nutrition and Metabolism” sýndi fram á að C vítamín hjálpaði til við að örva brennslu. En þeir sem voru lágir í C vítamíni misstu 25% minni fitu en þeir sem innbyrgðu nóg. C-vítamín ríkur matur er t.d jarðaber, kíwi, appelsínur, ananas, paprikur og sítrónur.

Grænt te

Grænt te inniheldur koffín sem eykur hjartslátt og hvetur til oxunar á fitu, sem hefur áhrif á brennsluna. Hér er hinn gullni meðalvegur ákjósanlegur þar sem of mikið koffíni getur haft slæm áhrif á líkamann, m.a getur það ýtt undir ógleði, hækkað blóðþrýsting og haft slæm áhrif á svefn. Í grænu te er einnig efnið ECGC (e. epigallocatechin gallate), en það er andoxunarefni sem styður við hjarta- og taugakerfið og getur minnkað líkur á heilablóðfalli. Einnig eykur það brennsluna þína, getur minnkað líkur á krabbameini, lækkað kólestról og stutt við ónæmiskerfið líka!

Hér kemur einn góður drykkur sem inniheldur hátt hlutfall C vítamíns, járns og ECGC andoxunarefnisins. Frábær fyrir brennsluna! Ef þú vilt prófa hann í morgunmat mæli ég með að bæta við fitu eins og avocadó eða kókosolíu til þess að fá ennþá betri byrjun á deginum.

shutterstock_108432062

Boost fyrir brennsluna

Innihald:

½ bolli grænt te

1 bolli ananas (frosinn)

2 lúkur spínat

1/2 appelsína (börkur tekinn af)

½ bolli möndlumjólk ósæt

1 msk kókosolía eða 1/2 avocadó (lítið)

Áttu vini sem vilja auka brennsluna? Deildu endilega með þeim á facebook :)

Heilsukveðja,

Sara Barðdal Heilsumarkþjálfi