Fara í efni

Við hvað erum við svona hrædd - Guðni með mánudagshugleiðingu

Við hvað erum við svona hrædd - Guðni með mánudagshugleiðingu

Við hvað erum við svona hrædd?

Áðan vitnaði ég í sálm úr Biblíunni sem flestir þekkja nokkuð vel, Drottinn er minn hirðir. Þetta er lofgjörð til guðs og yfirlýsing um að sá sem fer með hann treysti guði til að vernda sig, standa með sér og sjá um sig.

En hvað ef við gerum sálminn að okkar eigin? Getum við prófað það til gamans?

Sálmurinn minn

Ég er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum læt ég mig hvílast,
leiði mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta.

Ég hressi sál mína,
leiði mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns míns.
Þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt
því að ég er hjá mér,
sproti minn og stafur hugga mig.

Ég bý mér borð
frammi fyrir fjendum mínum, 
ég smyr höfuð mitt með olíu, 
bikar minn er barmafullur.

Gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína
og í húsi mínu
bý ég langa ævi.

Ég er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.

Ég er viss um að sumum finnst þetta brött breyting á inntaki sálmsins og til marks um mikilmennskubrjálæði og sjálfselsku.

En af hverju?

Hvað er athugavert við að „ég hressi sál mína“? Að ég „láti mig hvílast“? Að ég „sé minn hirðir“? Að ég „leiði mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta“?

Er þetta ekki frekar til marks um heilbrigða sjálfsást? Heilbrigða sýn á mann sjálfan? Til marks um að ég beri virðingu fyrir mér; að ég hugsi vel um mig, verndi mig og standi með mér? Til marks um að ég skilji þetta eilífa lögmál:

Sú virðing sem aðrir bera fyrir mér verður aldrei meiri en sú virðing sem ég ber fyrir mér.