Fara í efni

Nánd og einlægni - hugleiðing dagsins

Nánd og einlægni - hugleiðing dagsins

INNSÆI ER VAKANDI VITUND OG OPIÐ HJARTA

Nánd er einlægt hjarta – á sama augnabliki og þú snertir eigið hjarta snertir hjartað allan heiminn.
Í fimmta skrefinu opinberum við eigin heimild í öllu sem við segjum, gerum og tökum okkur fyrir hendur; heimildin blasir við okkur í þeim viðhorfum sem við höfum gagnvart heiminum og sjálfum okkur.

Í innsæinu erum við kærleiksríkt vitni sem fylgist með eigin hegðun með ekkert annað en kærleika að leiðarljósi, í vakandi vitund – þetta er afstöðulaust áhorf þar sem við sjáum eigin ferli til vansældar eða velsældar betur en nokkru sinni fyrr. Og þar sem við erum beintengd við opið hjartað getum við séð öll þessi ólíku ferli sem blessanir og tækifæri.