Fara í efni

Guðni minnir okkur á að fortíðin er liðin og að hanga þar er tilgangslaust

Hangir þú í fortíðinni?
hugleiðing á þriðjudegi~
hugleiðing á þriðjudegi~

Það er auðvitað einstaklingsbundið hve mikið fólk veltir sér upp úr úrgangi for- tíðarinnar.

En staðreyndin er sú að mörg okkar sleppa aldrei alveg tökunum á neinu sem gerst hefur heldur höngum við á hundruðum og þúsundum spotta. Og þegar okkur leiðist – þegar eirðarleysið tekur völdin – er mjög vinsæll og skemmtilegur samkvæmisleikur að þreifa á spottunum til skiptis, bara til að athuga hvort þeir séu ekki örugglega þarna ennþá.

Að fyrirgefa er hámark losunar fyrir sálina – sterkasta leiðin til að losna úr álögunum; úr iðrun og eftirsjá og hlutverki dómarans. Að fyrirgefa sér er að frelsa sig úr viðjum blekkingarinnar. 

Fyrirgefningin er mikilvægasta athöfn þíns lífs – ekkert eitt annað getur veitt þér eins mikið frelsi og það að fyrirgefa þér.
Til að frelsa mig vel ég að:
Fyrirgefa mér og taka ábyrgð á minni eigin hegðun.

Þakka hinum aðilanum fyrir hans framlag í atburðunum – blessa hans fram­ lag sem ómissandi þátt í minni framgöngu.