Fara í efni

Gamlar venjur - Hugleiðing Guðna á laugardegi

Gamlar venjur - Hugleiðing Guðna á laugardegi

Á endanum gefst vaninn upp

Því er stundum haldið fram að það taki að meðaltali 21 dag að breyta venju.

Til að búa til ný ferli þurfum við að losa strauminn af gömlu venjunum með því að kippa þeim úr sambandi, hreinlega að aftengja þær orkusviðinu í okkur.

Það gerist ekki af sjálfu sér, en það er sáraeinfalt þegar við gefum okkur tíma til að temja okkur, venja okkur við. Rétt eins og þú kaupir frábæra gönguskó sem valda þér hælsæri fyrstu skiptin, en á endanum lagast þeir að fótum þínum og verða þínir bestu vinir.