Fara í efni

Besti orkugjafinn - Guðni og hugleiðing dagsins

Besti orkugjafinn - Guðni og hugleiðing dagsins

UM GRÆNMETI OG ÁVEXTI

Grænmeti og ávextir eru besti orkugjafi sem þú getur fundið. Sérstaklega mælum við með lífrænt ræktuðu grænmeti og hráu, ef þess er kostur.

Heilinn notar eingöngu þrúgusykur (glúkósa) til að vinna úr. Eins og kom fram annars staðar vinnur líkaminn miklu hraðar úr sterkju en grænmeti og ávöxtum, sem gerir sterkju að síðri kosti. Þar að auki fylgja grænmetinu og ávöxtunum trefjar sem eru líkamanum afar nauðsynlegar, auk hvata, ensíma og ýmissa jákvæðra næringarefna.