Fara í efni

Að mæta til fulls í eigið líf - Guðni með hugleiðingu á laugardegi

Að mæta til fulls í eigið líf - Guðni með hugleiðingu á laugardegi

HEITBINDING

Heitbindingin er ákvörðun um að mæta til fulls í eigið líf, í núið, í eigin persónuleika, án áhengja, viðnáms, dóma og fordóma. Heitbindingin er að leggja sig allan fram, mæta alla leið, gefa engan afslátt og vera virkur til fulls gagnvart lífinu.

Heitbindingin er að horfa út úr hjartanu, skynja titringinn í tilganginum, sjá sýnina, varpa henni upp á tjaldið og leggja af stað. Með því að heitbinda sig einhverju verkefni, lífsstíl eða viðhorfi skapast samfella í lífinu – samhljómur með söng hjartans. Heitbundinn tilgangur verður kærleiksrík kjölfesta sem heldur þér á réttri leið; þegar þig ber af leið velurðu að refsa þér ekki og óttast ekkert, því þú veist að tilgangurinn er kjölfestan og markmiðin upplifast í augnablikinu – á ferðalaginu og í hreyfingunni sem alltaf er.

Hjartað er keisarinn sem beinir ljósinu yfir allt saman – í samræmi við verðugleika og heimild. Í hjarta þínu veistu alltaf hver þú ert og hvar – og þar með treystirðu því að allt sé eins og það eigi að vera, núna.