Fara í efni

Hættu þessum tíu hlutum því þeir láta þig eldast hraðar en nauðsynlegt er

Útlitsdýrkun er staðreynd í okkar nútímasamfélagi.
Hættu þessum tíu hlutum því þeir láta þig eldast hraðar en nauðsynlegt er

Útlitsdýrkun er staðreynd í okkar nútímasamfélagi.

Það eru t.d. til krem sem eiga að sporna við hrukkum, hárlengingar til að þykkja hárið og lengja það, allskyns meðferðir til að losa okkur við appelsínuhúð og svona mætti lengi telja.

Taktu því fagnandi

En á meðan sumir fagna því að eldast eru aðrir sem streitast hressilega á móti Elli kerlingu.

Hættu nú að hafa áhyggjur af gráum hárum og hrukkum. Það er hugarfarið sem skiptir máli þegar maður eldist, hvernig manni líður að innan en ekki utan. En hvort sem við hræðumst það að eldast eða tökum því fagnandi þá eru til nokkrar leiðir sem við getum tamið okkur til að hægja á öldrunarferlinu – bæði á líkama og sál.

Hér eru 10 atriði sem gera það að verkum að við eldumst mun hraðar en ella:

1. Að láta óhollustuna eftir sér

Það kannast allir við að langa óstjórnlega mikið í sætindi. Ef mann mundi langa í spínat í hvert sinn sem sætindapúkinn bankaði upp á væri maður í góðum málum.

Þegar okkur langar óstjórnlega í eitthvað gott sækjumst við í langflestum tilfellum í sætindi, súkkulaði, nammi eða sætabrauð. Og það er allt í lagi að leyfa sér það einstöku sinnum. En ef maður ætlar að gefa eftir í hvert sinn sem sætindaþörfin grípur mann býður þú hættunni heim. Of mikil sykurneysla stuðlar að mörgum heilsufarsvandamálum, hún hraðar öldrun, eykur hrukkumyndun og stuðlar að bólgum í húð.

2. Að sofa ekki nógu mikið

Líkami þinn þarf svefn til starfa eðlilega. Ef þú sefur ekki nóg hefur það slæm áhrif á þig líkamlega og andlega. Langvarandi svefnleysi skapar ójafnvægi í húðinni svo líkaminn hrörnar hraðar og baugar myndast.

3. Að taka ekki frá tíma fyrir sjálfan sig

Margt fólk er stöðugt að passa upp á allt og alla í kringum sig, að hinir séu hamingjusamir en gleyma svo að sinna sjálfum sér. Þú eldist hraðar ef þú ert stanslaust undir streitu og tekur þér ekki tíma til að hugsa um sjálfa/n þig.

Leggðu þig í líma við að setja þig í fyrsta sæti á hverjum degi. Farðu í göngu í hádegishléinu, slakaðu á í freyðibaði áður en þú ferð að sofa eða vaknaðu aðeins fyrr og lestu nokkra kafla í góðri bók. Aldrei gleyma að sinna sjálfri/sjálfum þér.

4. Að drekka of mikið áfengi

Það að drekka mikið áfengi veldur bólgum og hægir á efnaskiptum í líkamanum. Mikil drykkja ógnar heilsu, skapar aukaálag á kerfið, hraðar öldrun, þurrkar húðina og gefur þreytulegt útlit.

5. Að vera bitur

Að bera kala til einhvers er ekki hollt. Biturleiki er eins og krabbamein sagði einhver.

En það að endurspila slæma minningu í huganaum aftur og aftur eykur kvíða, þunglyndi og veldur hækkuðum blóðþrýstingi. Finndu leið til að fyrirgefa. Þér mun líða svo miklu betur og þú verður loksins frjáls frá því sem hélt aftur af þér.

6. Að einangra sig

Að eyða tíma með sjálfum sér er æðislegt. Það er afslappandi og friðsælt. En ekki gleyma að skipuleggja kvöld úti með vinunum annað slagið. Að vera í kringum fólk sem elskar þig eykur þína innri hamingju.

7. Of mikið af eiturefnum

Það er hægt að finna eiturefni í öllu nú til dags. Í matnum sem við borðum, í snyrtivörum og jafnvel í þvottaefnunum sem við kaupum út í búð til að þvo fötin okkar.

Þér finnst það kannski óþarfi en það borgar sig að lesa vörulýsingarnar á þeim vörum sem þú notar reglulega. Þau eiturefni sem eru oft notuð hafa langan lista af hættulegum aukaverkunum sem hafa skaðleg áhrifa á heilsu þina.

8. Að hreyfa sig af röngum ástæðum

Ef þú ert eingöngu að hreyfa þig til að missa aukakílóin verðu hreyfingin eins og nokkurs konar skylda . . . LESA MEIRA