Fara í efni

12 ástæður þess að þú ert alltaf þreytt/ur

Sefur þú í átta tíma en ert samt uppgefin/n á morgnana ?
12 ástæður þess að þú ert alltaf þreytt/ur

Sefur þú í átta tíma en ert samt uppgefin/n á morgnana ?

Það eru margir þættir sem spila inn í að ná góðum nætur svefn og jafn margir sem spilla góðum nætursvefni.

Kíkjum á málið.

Það er einfalt að búast við að vakna þreitt/ur ef farið er of seint að sofa. En samt koma þeir dagar þar sem sofið hefur verið í 7 tíma og þú gengur um eins og draugur, algjörlega uppgefin/n. Ástæðan fyrir þessu er mjög líklega að sá svefn sem þú sefur er ekki gæða svefn.

Það er margt sem við gerum yfir daginn sem getur svo truflað svefninn þegar að honum kemur.

Hér fer smá listi yfir það sem gæti verið að minnka gæði svefns í rúmi að nóttu.

1. Þú ferð á æfingu stuttu fyrir svefn

Að fara á hörku æfingu stuttu fyrir svefn getur minnkað gæði svefns. Sumir finna ekki fyrir þessu á meðan aðrir ná sér ekki niður og sofa afar laust og illa. Ef þig langar að taka einhverskonar æfingu að kvöldi þá er mælt með jóga. Annars er ákjósanlegur tími til að fara á æfingu 3-4 klukkustundum fyrir áætlaðan svefntíma.

2. Þú hreyfir þig ekki nógu mikið

Að vera mikið á hreyfingu yfir daginn er mjög gott til að næla sér í gæða svefn. Jafnvel 20 mínútna æfing, þá helst að morgni eða strax eftir vinnu, hjálpar þér einnig að ná góðum svefni.

3. Að borða rétt fyrir svefn

Fullur magi af mat skemmir nætur svefninn. Þung máltíð seint að kvöldi er afar slæm fyrir gæða svefninn þinn. Miklar líkur eru á brjóstsviða þegar þú leggst útaf sem dæmi.

4. Þú ferð að sofa með tóman magann

Að fara að sofa með tóman maga er jafn slæmt og að hafa hann fullan. Garnagaulið getur skemmt gæða svefn og þú sefur laust og illa. Sá möguleiki er líka fyrir hendi að þú gefist upp á hungrinu og farir og nælir þér í óhollustu úr ísskápnum um miðja nótt.

5. Þú sefur of mikið um helgar

Almennt þá hugsar fólk mikið um að fá nægan svefn. En það eru líka margir sem spá ekki í að það skiptir máli að hafa sömu svefnrútínu alla daga vikunnar, líka um helgar. Of lítill svefn í miðri viku og þú hugsar “ahh ég sef bara út um helgina og bæti þetta upp” virkar ekki. Að hafa fastan svefntíma og vekjaraklukkuna stillta á sama tíma alla morgna er besta leiðin til að ná gæða svefni.

6. Þú er síma-fíkill

Að vera endalaust í símanum seinnipartinn og snemma á kvöldin truflar svefnmynstur þitt. Slepptu símanum þegar þú kemur heim úr vinnu. Og alls ekki hafa hann inn í svefnherbergi.

7. Koddinn og dýnan þín eru gömul

Það er ótrúlegt hversu margir sofa ennþá með koddann sem þau áttu þegar þau voru unglingar. Þessi koddi er bara alls ekki neitt góður þó þú haldir mikið uppá hann. Það á að kaupa kodda sem hentar þér sem fullorðinni manneskju. Og þegar keypt er ný dýna í rúmið, eða nýtt rúm þá skal passa sig að velja ekki of lina né of harða dýnu. Farðu meðalveginn.

8. Það er óhreint á rúminu

Það er ekki neitt skemmtilegt að þvo sængurfatnað og lakið, né að búa um rúmið. En þetta þarf að gera vegna hreinlætis. Þú sefur miklu betur í tandur hreinum sængurfötum. Reyndu að skipta á rúminu a.m.k einu sinni í viku eða oftar.

9. Það er of bjart í svefnherberginu

Svefnherbergið á að vera eins myrkvað og mögulegt er. Ekkert sjónvarp, tölva né sími á að vera þar inni. Að sofa í algjöru myrkri eflir framleiðslu melatóníns en við þurfum það hormón til að sofa vel.

10. Það er of heitt í svefnherberginu

Það eru skiptar skoðanir á því hversu heitt fólk vill hafa í sínu svefnherbergi. En ferskt loft og svalt svefnherbergi er það besta fyrir gæða svefn.

11. Svefnherbergið þitt er fullt af ryki

Hvenær ryksugaðir þú undir rúminu? Já, í alvöru, það verður að þrífa svefnherbergið jafnvel og stofuna. Ryksugið þar inni og þurrkið af a.m.k einu sinni í viku. Það má ryksuga oftar.

12. Þú ert með einhverskonar svefnröskun

Ef þú veist að þú ert að ná sæmilegum svefni allar nætur þrátt fyrir tandur hreint svefnherbergi sem er með réttu hitastigi og er alveg myrkvað þá ertu sennilega með einhverskonar svefnröskun. Það getur verið gott að tala við lækni þegar svona er komið og fá ráðleggingar.

Heimild: self.com