Fara í efni

Víðavangshlaup, frábær þjálfun og veruleg áskorun

Víðavangshlaup í hefðbundnum skilningi eru almennt haldin á margs konar undirlagi, oftast á grasi en einnig í möl, mold, drullu og sandi.
Víðavangshlaup, frábær þjálfun og veruleg áskorun

Víðavangshlaup í hefðbundnum skilningi eru almennt haldin á margs konar undirlagi, oftast á grasi en einnig í möl, mold, drullu og sandi. Í þeim er gjarnan að finna brekkur, beygjur og sveigjur og þannig má segja að þau reyni ekki aðeins á úthald og hraða heldur einnig á styrk, útsjónarsemi og skynsama nýtingu á "púðrinu".

Hlauparar þurfa líka stundum að vera „kaldir“ og láta sig gossa niður brekkurnar til að komast fram fyrir andstæðinginn ef að framundan er einstigi eða þröng leið. Víðavangshlaupin geta því verið mjög mismunandi og mis krefjandi og í raun getur verið mjög erfitt að fara með tilteknar væntingar inn í þessa tegund keppnishlaupa.

Oftast er viðhaft hringhlaupa fyrirkomulag og hringirnir oft 1-3 km að lengd sem gerir víðavangshlaup oft mjög skemmtileg fyrir áhorfendur þar sem hlaupararnir koma oft framhjá og því hægt að hvetja þá áfram en einnig hægt að sjá hvernig sumir sem byrja hægar vinna á hina og fara jafnvel framúr á lokametrunum. Nálægðin við hlauparana og stemminguna sem ríkir er einnig meiri en í hefðbundnum götu- og brautarhlaupum.

Hollvinafélagið Framfarir hafa í samstarfi við Afreksvörur haldið víðavangshlauparöð á hverju hausti síðan árið 2004, undir merkjum New Balance, Saucony og nú og í fyrra Newton Running. Að undanteknu fyrsta árinu hafa hlaupin verið haldin með því sniði að hafa bæði “stutta” og “langa” vegalengd. Stutta hlaupið er yfirleitt um og undir 1 km og það langa 5-6 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri úr öllum áttum. Þannig hafa stuttu hlaupin verið sérstaklega vinsæl hjá yngri krökkunum, þó að þeir séu einnig farnir að koma skemtilega á óvart í lengri hlaupunum líka. Hlauparar úr hlaupahópum sem hafa mætt í víðavangshlauparöðina hafa látið vel af keppninni og talið hana vera jákvæða viðbót við sínar æfingar og keppnisreynslu.

Dagsetningar og staðsetningar víðavangshlauparaðar Newton Running og Framfara haustið 2015 eru sem hér segir:

3. október í Heiðmörk - upplýsingar um þetta hlaup er neðar í greininni. 

17. október við Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogsdalnum (skógurinn fyrir neðan Landspítala í Fossvogi)

31. október við Vífilsstaðaspítala

7. nóvember við Borgarspítalann

Nánari upplýsingar er að finna á www.heilsutorg.is og hlaup.is.

Hlaup 1, Heiðmörk, 3.október:

Staðsetning er innst í Heiðmörk Reykjavíkurmegin, þar sem oft er nefnt “Hornið”.

Í opnunarhlaupinu verður nokkur nýbreytni viðhöfð:

  • Stutta hlaupið er 1.1km og það er ekki heill hringur en í því er nettó lækkun
  • Langa hlaupið er 2 hringir, og haldið á heldur lengri hring (2.67km) en áður hefur verið, og í öfuga átt miðað við það stutta. Það er því 5.2km að lengd.

Undirlag er möl af bestu gerð, ekki er mælt með að hlaupa í gaddaskóm.

 

Hringir

 

Til að komast á staðinn:

Myndin sýnir legu brautar miðað innan Heiðmerkur og leið á keppnisstað frá Suðurlandsvegi. Bílastæði eru á staðnum en mælst til þess að leggja þannig að keppendur komist leiðar sinnar.