Fara í efni

Óvíst að erfið æfing eftir mikla erfiðisvinnu skili mjög miklu

Tími okkar er verðmætur og öll viljum við nýta hann sem best, ekki síst í ræktinni.
Hægt er að gera hiit æfingar á ýmsa vegu
Hægt er að gera hiit æfingar á ýmsa vegu

Í pistli dagsins ræðir Víðir Þór Þrastarson um hiit æfingar sem eru stuttar og árangursríkar æfingar en Víðir segir að stutt æfing sé betri en engin æfing.

Tíminn er verðmætur.

Tími okkar er verðmætur og öll viljum við nýta hann sem best, ekki síst í ræktinni. Við getum sagt að hinn dæmigerði tími í líkamsrækt sé u.þ.b klukkustund. Þeim tíma er þó ansi misjafnlega varið hjá fólki sem er í raun bara gott og blessað. Hver og einn þarf að finna hvernig hann vill æfa og líður vel með. Hjá mörgum er ræktin social staður og partur af prógraminu er bara að kjafta við næsta mann. Aðrir vilja þó nýta tímann til betur til að rækta líkamann og þá eru svokallaðar hiit æfingar (high intensity interval training) hrein argasta snilld.

Heimildamynd.

Um er að ræða eins og nafnið gefur til kynna stuttar en mjög snarpar lotur, til þess fallnar að rífa upp þol og brenna fitu. Í heimildamynd sem Rúv sýndi í byrjun janúar (The truth about exercise) er m.a fjallað um hiit æfingar og gagnsemi þeirra sönnuð með sterkum vísindalegum prófunum.

Í umræddri mynd voru einstaklingar látnir taka þrjá 20 sekúndna spretti með eins til tveggja mínútna í hvíld á milli lota, s.s 60 sek og það þrisvar í viku eru 3 mínútur sem gera alls 12 mínútur á mánuði. Þrátt fyrir þennan stutta tíma bættu flestir úthald sitt og efnaskiptin urðu betra, s.s. ríkari insúlínframleiðsla og fyrir vikið bætt niðurbrot glýkógens úr vöðvum og lifur. Þar að leiðandi má gera ráð fyrir aukinni grunnbrennslu.

Þess skal geta að ég er mjög hrifinn af því æfa heildrænt, að þjálfa alla þætti og þá ásamt hiit æfingunum að stunda einnig styrktar- og liðleikaþjálfun. Málið er að það er alltaf að koma betur og betur í ljós að meira er ekki endilega betra. Hægt er að mæta í hálftíma og taka vel á því og fá alveg helling út úr því. Eða þá fyrir önnum kafna íslendinga sem margir hverjir segjast ekki hafa tíma fyrir ræktina að prófa hiit. Það þarf ekki langan tíma hverju sinni til að stórbæta líkamlegt ástand sitt.

Hiit æfingar og ímyndunaraflið.

Hægt er að gera hiit æfingar á ýmsa vegu, í raun þarf bara að nota ímyndunaraflið.

Æfingarnar er einnig hægt að gera á bretti og taka þá spretti eða þá lotur þar sem hraði er aukinn sem og halli í eina mín og síðan er lækkað niður aftur í 2 mín o.s.frv.

Hægt er að fara á fullu á crosstrainer í 30 sek og hvíla í 30 sek á móti.

Aðalatriðið er að rífa púlsinn vel upp og mæðast svolítið. Það er það sem skilar árangri.

Alltaf skal taka 3-5 spretti hverju sinni með 1-2 mín hvíld á milli.

Þessar æfingar eru mjög skemmtilegar og henta flestum en eru þó krefjandi. Einstaklingar sem lítið hafa hreyft sig í lengri tíma en ætla í átak þurfa að fara hægt af stað og prófa sig áfram. Einnig er gott að hafa vaðið fyrir neðan sig og kanna hvort blóðþrýstingur og jafnvel blóðfita sé ekki í lagi áður en farið er að stað.

Gangi ykkur vel

Víðir Þór, Íþrótta- og heilsufræðingur