Fara í efni

Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar

Við konur eigum því miður auðveldara með að geyma fitu en karlar vegna hormónsins oestrogen og áhrifum þess á líkamann. Það minnkar getu okkar til að brenna fitu eftir máltíð, sem leiðir af sér að meiri fita sest á líkamann og þá gjarnan á kviðinn. Síðustu daga hef ég verið að ræða við þær konur sem eru skráðar í Nýtt líf og Ný þú þjálfunina sem hófst í síðustu viku en vegna vinsælda höfum við framlengt skráningarfrestinn út morgundaginn! Ég hef tekið eftir mynstri sem ég hef svo oft séð áður.. Margar af þeim upplifa sig strand og fastar í vítahring þreytu, aukakílóa og orkuleysis og vita ekki hvernig þær eiga að koma sér af stað. Þær ætla alltaf að byrja á morgun en svo verður ekkert úr því. Er þetta eitthvað sem þú kannast við?
Orkulaus og nærð ekki að léttast? Þetta gætu verið ástæðurnar

Við konur eigum því miður auðveldara með að geyma fitu en karlar vegna hormónsins oestrogen og áhrifum þess á líkamann. Það minnkar getu okkar til að brenna fitu eftir máltíð, sem leiðir af sér að meiri fita sest á líkamann og þá gjarnan á kviðinn.

Síðustu daga hef ég verið að ræða við þær konur sem eru skráðar í Nýtt líf og Ný þú þjálfunina sem hófst í síðustu viku en vegna vinsælda höfum við framlengt skráningarfrestinn út morgundaginn! Ég hef tekið eftir mynstri sem ég hef svo oft séð áður..

Margar af þeim upplifa sig strand og fastar í vítahring þreytu, aukakílóa og orkuleysis og vita ekki hvernig þær eiga að koma sér af stað. Þær ætla alltaf að byrja á morgun en svo verður ekkert úr því. Er þetta eitthvað sem þú kannast við?

Eftir að hafa leitt hundruði í gegnum Nýtt líf og Ný þú þjálfun sem hefst nú í áttunda sinn hef ég tekið eftir 5 algengum ástæðum þess að konur ná ekki árangri og standa í stað með heilsuna og þyngd! 

1. Þú ert föst í vítahring skammtímalausna

Að fara í átak í stuttan tíma getur verið freistandi en endar það nokkurn tímann sem langtímalífsstíll?

Vandamálið liggur í hugarfarinu og undirmeðvitund okkar sem stýrir 90% af því sem við gerum. Undirmeðvitundin leitast ávallt eftir því að endurtaka gamla farið óháð því hvort við viljum það eða ekki. Þetta þýðir að ef við höfum vanið okkur á að fara í átök eða kúra sem hafa endastöð eftir ákveðinn tíma er ekki óeðlilegt að byrja og gefast svo upp.

Að fara í átak eða kúr veldur því einnig að enn meiri fitusöfnun verður að hverju sinni samkvæmt Albert Einstein College of Medicine.

Ef þetta ert þú gætir þú upplifað:

Mynstur sem hefur haldið þér í sama farinu síðastliðin ár, þegar árangur næst eða álag kemur, gefstu upp á þínum markmiðum og rútínan fer í rugl.

Mörg okkar halda því fram að með breyttum lífsstíl megum við aldrei aftur borða það sem okkur þykir gott. Það er stór misskilningur en heilbrigður lífsstíll gæti ekki verið ólíkari, enda snýr hann frekar að því að njóta matarins og finna það jafnvægi sem gefur okkur bæði árangur og lífshamingju. Boð eða bönn virka ekki!

Til þess að koma þér úr vítahring skammtímalausna þarf að setja hugann við varanlegan árangur, sem er eitthvað sem þú gerir í upphafi Nýtt líf og Ný þú þjálfunar með öflugri hugarvinnu. 

Screen Shot 2018-10-01 at 22.48.43

2. Óhreinn ristill

shutterstock_528334321

Grunnurinn að góðri heilsu er heilbrigð þarmaflóra.

Ristillinn þinn virkar sem fráveitukerfi líkamans og með vanrækslu á honum breytist hann í geymslustað fyrir eiturefni og starfsemi hans skerðist. Þá leysir ristillinn frekar eiturefni út í blóðrásina sem hefur áhrif á heilastarfsemi, taugakerfi, líffæri og skjaldkirtilinn. Þegar þessir hlutir eru undir neikvæðum áhrifum hefur það einnig neikvæð áhrif á orku þína.

Ristillinn tengist því einnig hvort við nýtum þá næringu sem við fáum frá fæðu og bætiefnum eða ekki. Ef ristillinn er uppfullur af eiturefnum þá nýtast næringarefnin verr sem leiðir til næringarskorts þrátt fyrir að verið sé að neyta næringarefnanna!

Aftur á móti þegar ristillinn er hreinn og við sitt besta þá upplifum við okkur heilsuhraustar, orkumiklar og við ljómum að innan sem utan.

Ef þetta ert þú gætir þú upplifað:

Færri en 2-3 á klósettferðir á dag, uppþembu, orkuleysi, slappleika, depurð, vanlíðan og fleira. Taktu stutt hreinsunarpróf hér til að sjá hvort þú þurfir á hreinsun að halda eða ekki.

Áhrifaríkasta leiðin til að koma koma þarmaflórunni í eðlilegt ástand er með blíðlegri hreinsun með alvöru mat (ekki aðeins með söfum en slíkt getur haft slæm áhrif á nýrnahettur og skjaldkirtil).

Alltaf þegar ég fer í gegnum hreinsun líður mér eins og nýrri manneskju og finnst mér engin önnur tilfinning vera henni lík.

Eftir 2 vikur hefst einmitt þriggja vikna hreinsun í Nýtt líf og Ný þú þjálfun. Í hreinsuninni er borðaður dásamlegur matur (sem allir á heimilinu getað notið) og ávinningurinn er meðal annars minni verkir, aukin orka, léttari líkami um allt að 3-10 kíló (bara á þessum 3 vikum og þau kíló koma ekki aftur!), bættur svefn, minnkun á hitakófum, bætt kólesterólstig og margt fleira! Þú getur smellt hér til að bóka 15 mín símatíma til að komast að því hvort Nýtt líf og Ný þú þjálfunin henti þér og sjá möguleika þína með þjálfun (engin binding er með tímanum en aðeins takmarkaðir tímar eru í boði). 

3. Skaðleg fæða

Vissir þú að allt að 75% einstaklinga eru með fæðuóþol eða viðkvæmni án þess að vita af því?

Þetta sýnir rannsókn frá Dr. Natasha McBride og Dr. Mercola. Einnig hefur Dr. Mark Hyman (höfundur The Ultra Mind Soulution) fundið tengsl á milli líkamskvilla, andlegrar depurðar og óþekkts fæðuóþols.

Fæðuóþol getur komið fram með tímanum og árunum samkv. Doktor Elizabeth W.

Fæðuóþol er gjarnan undirliggjandi og getur með tímanum valdið ójafnvægi í líkamanum eins og þyngdaraukningu, orkuleysi og liðverkjum. Því er mikilvægt að vera vör um þegar líkaminn tekur slíkum breytingum (sem gjarnan gerist hjá konum á fertugsaldri og uppúr) og gera þá breytingar samhliða þeim í mataræði og lífsstíl.

Ef þetta ert þú gætir þú upplifað:
Reglulega uppþembu, vindgang, niðurgang, harðlífi, stöðuga svengd, liðverki, orkuleysi, líkamskvilla, astma, exemi, höfuðverk, þyngdaraukningu, þyngdarstöðnun, verki í vöðvum og liðum, þróttleysi og skjaldkirtilsvandamál.

Eitthvað sem þú gerir með Nýtt líf og Ný þú þjálfun er að finna þær fæðutegundir sem geta verið skaðlegar þínum líkama og orsaka orkuleysi, þyngdaraukningu, heilsukvilla, verki o.s.frv. og á móti fundið hvaða fæða það er sem gefur þér orku, vellíðan og léttari líkama með lífsstíl sem þú viðheldur. Konur hafa meira segja fundið út fæðu sem styður við heilbrigðan skjalkirtil og hjálpað til að minnka svitakóf sem fylgja breytingaskeiði.

4. Streita

shutterstock_192268697

Stöðug og lúmsk streita leggur grunn að flestum vandamálum tengdum heilsu í dag.

Stresshormón eins og kortisól orsaka þyngdaraukningu og fitusöfnun, og þá sérstaklega um kviðinn. Streita í lifrinni, hvort sem það sé frá ytri kringumstæðum, fæðutegundum, yo-yo þyngdartaps eða sykri er nátengd hormónaójafnvægi, þyngdaraukningu, svefntruflunum,  orkuleysis og vanupptöku næringarefna.

Ef þetta ert þú gætir þú upplifað:
Kviðfitu, bólgur, sykurlöngun, bauga, erfiðleika með að róa taugakerfið, svefntruflanir, yfirþyrmd við minnsta áreiti, samskiptaerfiðleikar, meltingartruflanir o.fl.

Streitulosandi atriði, regluleg hreyfing, minni sykur og koffín og að losa líkamann við fæðutegundir sem eru honum skaðlegar eru nauðsynleg atriði í að viðhalda jafnvægi líkamans sem gerir okkur kleift að takast betur á við streitu í daglegu lífi.

Hugarfar, streita og mataræði helst í hendur til að geta skapað varanlegan lífsstíll og viðhaldið líkamanum upp á sitt besta. Eitthvað sem við gerum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun.

5. Vanvirkur skjaldkirtill

Einn af hverjum fimm einstaklingum eftir fertugt glímir við sjaldkirtilsvandamál. Algengast er þá vanvirkur skjaldkirtill og er það ein ástæða þess að konur eftir fertugt eiga erfitt með þyngdartap og glíma við orkuleysi. Láttu því athuga skjaldkirtilinn hjá lækni og ekki óttast ef upp kemur að þú glímir við vandamál í skjaldkirtlinum. Þrátt fyrir að gen spili hlutverk í því er margt til ráða með mataræði og lífsstílsbreytingum enda mataræðið talið 50% orsök fyrir lötum eða vanvirkum skjaldkirtli.

Gen getur spilað hlutverk í því hvort vanvirkur eða latur skjaldkirtill þróast en á sama skapi sýna rannsóknir að 50% orsaka vanvirkra skjaldkirtla má rekja til mataræðis-og lífsstílsþættir! Deildi ég einmitt með sögu minni um latan skjaldkirtil hér.

Ef þetta ert þú gætir þú upplifað:
Orkuleysi, þróttleysi, þreytu, verki í vöðvum og liðum, sinadráttur, óþol gagnvart kulda, höfuðverkur og tíðatruflanir. Þurra og föla húð, þunnar neglur og hár.

Bætiefni, fæðutegundir og rétt hreyfing sem hluti af mínum lífsstíl hefur hjálpað mér að vinna upp heilsu skjaldkirtils og halda honum í heilbrigðu ástandi. Ég lærði margt sem gæti hjálpað þér en á sama tíma eru mismunandi hlutir sem hjálpa hverjum og einum. 

Vilt þú kveðja gamla farið og skapa breyttan lífsstíl?

Rannsóknir sýna að með stuðningi erum við 80% líklegri til þess að ná varanlegum árangri.

Svo ef þig hefur langað að breyta um lífsstíl og öðlast varanlegt þyngdartap, orku og allsherjar bætta heilsu er þinn tími núna því þú getur tryggt þér eitt af síðustu plássunum í Nýtt líf og Ný þú þjálfun sem var að hefjast og hefst ekki aftur fyrr en eftir ár!

Skrefin í þjálfun eru þau sem hafa komið mér og yfir hundruðum öðrum að óskaþyngdinni, FULL af orku, hreysti og vellíðan.

Smelltu hér til að segja já við þér með Nýtt líf og Ný þú þjálfun!

Ef greinin höfðar til þín smelltu þá hér til að fá sendan 1 dags matseðil og innkaupalista úr Nýtt líf og Ný þú þjálfun ókeypis og í framhaldi tækifæri að tala við mig um þína heilsu og þjálfun!

Heilsa og hamingja,

jmsignature

 

 

P.S. Vilt þú fyllast orku og vellíðan og finna sátt í eigin skinni? Bókaðu 15 mín símtal og lærðu hvernig!

Í símtalinu förum við yfir heilsu þína og hvaða skref er best fyrir þig að taka til þess að þú náir heilsumarkmiðum þínum áreynsluslaust. Ef við sjáum tengingu við Nýtt líf og Ný þú þjálfun og erum örugg að hún geti hjálpað þér deilum við með þér hvernig þjálfun virkar.

Nýtt líf og Ný þú er einstök þjálfun og aðeins fyrir þá sem eru tilbúnir að kveðja skyndilausnir fyrir fullt og allt og fylgja sannprófuðum skrefum

Smelltu hér til tryggja þér 15 mín símtal!
(Ath: Enginn kostnaður eða skuldbinding fylgir því að panta tíma en aðeins takmarkaður fjöldi tíma er í boði!)