Fara í efni

Hreyfismiðja - 10-12 ára DANS SEM FARVEGUR FYRIR ORKU

Námskeiðið er fyrir stráka á aldrinum 10 - 12 ára. Hentar vel strákum með ADHD.
Hreyfismiðja - 10-12 ára DANS SEM FARVEGUR FYRIR ORKU

DANS SEM FARVEGUR FYRIR ORKU

Námskeiðið  er fyrir stráka á aldrinum 10 - 12 ára. Hentar vel strákum með ADHD.

Á námskeiðinu verða kenndir nokkrir dansstílar sem byggja á YES AND tækni, eða jákvæðni í bland við flæði, sköpun og nútímadans. Unnið verður með hreyfingu á fjölbreyttan hátt með liðleikaæfingum, gjörningum, flashmob, spuna auk þess sem farið verður í vettvangsferðir. Gestakennarar koma líka í heimsókn og fjalla sérstaklega um mátt hugans.

Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust og líkamsímynd þátttakenda. Unnið verður með líkamsmeðvitund og beitingu dansins sem farveg fyrir tilfinningar og reiði.

Námskeiðið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Klifsins, en Guðmundur Elías stundar kennsluréttindanám við LHÍ. Hreyfismiðjan er í þróun og munu þátttakendur fá tækifæri til þess að taka virkan þátt í mótun námskeiðsins með Guðmundi að þörfum stráka með ADHD. 

  • Námskeiðisnúmer: V156402
  • Staðsetning: Sjálandsskóli
  • Hefst: 27 apríl 2015
  • Fjöldi skipta: 8 skipti, 50 mínútur í senn
  • Kennslustundir: 8 kennslustundir
  • Vikudagur: mánudagur miðvikudagur
  • Tími: kl. 15:00 - 15:50
  • Aldur: 10 - 12 ára
  • Fyrir hverja: Fyrir stráka
  • Verð: 15900

Á heimasíðunni er afar auðvelt að skrá sig á námskeiðið. 

Kennari

v

 

Guðmundur Elías Knudsen leggur stund á meistaranám við listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Guðmundur var fastráðinn við Íslenska dansflokkinn frá hausti 2001 til vors 2012 og tók hann þátt í öllum uppfærslum flokksins nema Ambra og Transaqvia á þeim tíma. Hann hóf nám við Listdansskóla Íslands ´94-96 eftir það flutti hann sig til Hollands í nám við Hogeschool voor de Kunsten í Arnhem. Þaðan útskrifaðist hann vorið 2000. Guðmundur dansar annað tveggja hlutverka í dansmynd Katrínar Hall "Burst" sem hlaut verðlaun á danshátíð í Toronto, Kanada. Hann var hreyfimeistari fyrir Algjör sveppur, Dagur í lífi drengs, sem fékk tilnefningu sem besta barnasýningin. Hann hefur auk þess tekið þátt í fjölda söngleikjum og var Dans Kafteinn í sýningu Borgarleikhúsins, Mary Poppins. Í vetur mun Guðmundur taka þátt í sýningu Borgarleikhússins á söngleiknum Billy Elliot.

klifid.is