Fara í efni

Nú verður hlaupið alla leið

Víðavangshlauparöð Framfara & Newton Running
Newton Running á Íslandi & Afreksvörur kosta hlaup
Newton Running á Íslandi & Afreksvörur kosta hlaup

Newton Running á Íslandi kynnir 11. Víðavangshlauparöð Framfara.

Hlaupin eru fjögur og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 11:00 á laugardagsmorgnum í október og nóvember.

Um tvær vegalengdir er að ræða, “stutt” og “langt” hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 700-800m og það langa 4-7.5km.

Keppnisgjald er 500kr en ókeypis fyrir börn undir 12 ára aldri.  

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar:

  1. 4.október - Rauðavatn
  2. 11.október - Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi
  3. 1.október - Vífilsstaðatún
  4. 8.nóvember - Borgarspítali

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna og veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá einstaklinga í stigakeppninni að hlaupunum loknum. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi.  Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni en aðeins þrír bestu keppnisdagar gilda í lokin. Þannig er óhætt að forfallast í einu hlaupi án þess að heltast úr lestinni í stigakeppninni.

Kort og lýsingar á brautum fara hér á eftir:

Hlaup 1, Rauðavatn, 4.október:

Hringurinn er 950m að lengd og alfarið á malarstígum. Talsvert um brekkur, nokkuð um tæknilegt einstigi, gljúpur hestastígur. Ekki er mælt með að hlaupa á gaddaskóm.

Hlaupinn er 1 hringur (1km) í stutta hlaupinu en 4 (4km) í því langa.  

Bílastæði eru við Elliðavatnsbæ.

Hringur:

 

Til að komast á staðinn:

Myndin sýnir legu brautar miðað við austurenda Rauðavatns og Olís Norðlingaholti, þar sem mælt er að nýta bílastæðin andspænis bensínstöðinni.

 

Hlaup 2 – Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi – 11.október

Hringurinn er um 900m að lengd, á malarstígum og moldarslóðum innan lands Ræktunarstöðvarinnar. Brautin er ekki mjög tæknileg, undirlag er mestmegnis slétt og hörð möl. Ekki er mælt með að hlaupa á gaddaskóm. Hlaupnir eru 1 hringur (900m) í stutta hlaupinu og 5 hringir (4.5km) í því langa.

Braut:

 

Hlaup 3 - Vífilsstaðatún, 1.nóvember

Hringurinn er 1.1km að lengd, tæknilegur og með talsverðri hækkun. Hlaupið er á grasi. Mælt er með að hlaupa á gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1.1km) í stutta hlaupinu en 5 hringir (5.5km) í því langa.

Bílastæði við Vífilsstaði.

Hlaup 4, Borgarspítali, 8.nóvember

Hringurinn er 1km að lengd, tæknilegur, hæðóttur og á köflum mýrlendur. Hægt er að hlaupa í gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1.1km) í stutta hlaupinu en 6 (6.6km) í því langa.

Bílastæði eru við spítalann.