Fara í efni

Lífshlaupið, heilsu og hvatningarverkefni ÍSÍ

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, verður ræst í sjöunda sinn miðvikudaginn 5. febrúar 2014.
Lífshlaupið
Lífshlaupið

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, verður ræst í sjöunda sinn miðvikudaginn 5. febrúar 2014.

Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í vinnustaða-, grunnskóla- og einstaklingskeppni, þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.

Við hvetjum alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu.

Opnað hefur verið fyrir skráningu vinnustaða, grunnskóla og einstaklinga á www.lifshlaupid.is.

NÝTT – fleiri valmöguleikar við skráningu. Nú getur einn aðili séð um að skrá mörg lið til leiks og einnig er hægt að velja á milli þess að skrá alla starfsmenn í sama liðið eða setja upp liðakeppni innan vinnustaðarins.