Fara í efni

Hlaupahópurinn Bíddu aðeins

Hópurinn er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna
Hlaupahópurinn Bíddu aðeins
Hlaupahópurinn Bíddu aðeins

Þjálfarar:   Bryndís Baldursdóttir og Ásgeir Elíasson

Hópurinn hleypur frá: Sundlaug Kópavogs, Borgarholtsbraut Kópavogi  

Æfingatímar:  Mánudaga og miðvikudaga klukkan 17:30, laugardagsmorgna klukkan 09:00 – svo eru æfingar án þjálfara annað hvort frá sundlauginni eða í Heiðmörk á fimmtudögum klukkan 17:30.

Byrjendur: Hópurinn er jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna, það hlaupa allir út m.v. eigin getu og eigin markmið.   Byrjendur geta komið með okkur hvenær sem er, í hvaða formi sem þeir eru.  Það er ávallt einn þjálfari aftast.

Hópurinn tekur þátt í hlaupatengdum viðburðum hérlendis og erlendis.  Við förum ávallt saman í Powerade hlaupin, Gamlárshlaupið og Reykjavíkurmaraþonið og mörg hlaup út á landi. Auk þess höfum við fjölmennt í vor-og haustmaraþon FM og sú hefð hefur skapast að einn félagi okkar býður upp á marengstertu eftir hlaupið.  Þeir sem ekki hlaupa fjölmenna til að hvetja hina. Hópurinn hefur farið saman í marþonferð til Parísar 2011 og það er hópur að fara núna í maraþonferð til Munchen í október.

Hópurinn heldur ekki sín/sitt eigin/eigið hlaup,  en það er góð hugmynd ;-)

Félagslíf hjá hópnum utan við venjulegar hlaupaæfingar : 
Við höfum haldið árlega árshátíð, annað hvort í formi súpuveislu eftir laugardagshlaup, eða hamborgaraveislu og sl. vor var stórveisla þríréttuð með veislustjórum og skemmtilegum skemmtiatriðum.

Vefsíða:  Við erum á facebook undir Bíddu aðeins.

Bíddu aðeins hlaupahópurinn er einnig í samstarfi við Þríkó (Þríþrautafélag Kópavogs) sem syndir með Görpunum í Breiðablik og hleypur með Hjólamönnum.  

Innan Bíddu aðeins eru sjö aðilar sem eru í 100 km hópnum, þ.m.t. báðir þjálfararnir. 
Einnig eru innan hópsins átta járnmenn, þ.e. karlar (3) og konur (5) sem hafa tekið þátt í Ironman mótum erlendis. Innan hópsins eru þrír af fyrstu Landvættum Íslands sem kláruðu fjórþraut á árinu í gönguskíðum, fjallahlaupi, sundi og fjallahjólreiðum.  

Það ættu því allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi innan Bíddu aðeins.