Fara í efni

Fjölnishlaupið - Grafarvogslaug 30. maí kl. 11

Fjölnishlaupið - Grafarvogslaug 30. maí kl. 11

FJÖLNISHLAUPIÐ GRAFARVOGSLAUG 30.MAÍ KL. 11

Hið árlega Fjölnishlaup verður ræst í 31. sinn við Grafarvogslaug í Dalhúsum á
uppstigningardag 30. maí kl. 11.

10 km hlaup, 5 km hlaup og 1,4 km skemmtiskokk.

10 km hlaupið er hluti af Powerade sumarhlaupunum og Íslandsmótið í 10 km hlaupi í ár.

Skráningargjöld:

3.000 kr í 10 km, 2.500 kr í 5 km í forskráningu á hlaup.is til miðnættis 29. maí.

3.500 kr í 10 km, 3.000 í 5 km ef
skráð er á staðnum.

1.000 kr í skemmtiskokkið – hámark 3.000 kr á fjölskyldu.

Powerade í boði CCEP og frítt í sund að loknu hlaupi.

Fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.

Afhending gagna og skráning á staðnum verður frá kl. 18-20 29. maí og á keppnisdag frá 09:30 til 10:15 í anddyri Grafarvogslaugar í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum.

Nánari upplýsingar á hlaup.is og sumarhlaupin.is