Fara í efni

Árbæjarskokk hópurinn

Árbæjarskokk getur vart talist til stærri hlaupahópa en fyrir vikið er hann mjög samheldinn og þar ríkir mjög góður andi og vinátta.
Árbæjarskokk hópurinn
Árbæjarskokk hópurinn

Nafn hópsins: Árbæjarskokk

Þjálfari/Þjálfarar: Bergþór Ólafsson

Hvaðan hleypur hópurinn: Hópurinn hittist við Árbæjarlaug og hefur úr fjölmörgum fallegum hlaupaleiðum að velja. Yfirleitt er hlaupið um Elliðaárdalinn niður í Fossvog, yfir í Kópavog eða um Heiðmörk og Hólmsheiðarsvæðið. Eftir æfingar hittist hópurinn í heita pottinum í Árbæjarlauginni, slakar á og hitar kroppinn eftir miklar frosthörkur. Á sumrin eru Elliðaárnar oft notaðar til kælingar áður en farið er í pottinn.

Hvaða daga og kl. hvað: Við æfum á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30. Þá eru yfirleitt teknar sprettæfingar eða tempóæfingar eftir ca. 2 - 3 km upphitun. Heildarlengd æfinga er um 10 km. Á laugardögum hefst æfingin kl. 9 og þá eru farin lengri hlaup. Stundum er bætt við aukaæfingu á fimmtudögum kl. 17:30.

Er hópurinn fyrir byrjendur og lengra komna: Það eru allir velkomnir að hlaupa með hópnum og við leiðbeinum byrjendum eftir bestu getu. Innan hópsins er hægari hópur sem hentar betur byrjendum og fer hann yfirleitt styttra á æfingum en þeir sem eru lengra komnir.

Er hópurinn virkur í að taka þátt í hlaupatengdum viðburðum hérlendis og erlendis: Hópurinn er yfirleitt með fulltrúa í öllum helstu hlaupum hérlendis. Hópurinn stefnir á a.m.k.eina hlaupaferð erlendis á hverju ári. Þá eru valin áhugaverð maraþon annað hvort að vori eða hausti. Oft er reynt að velja hlaup sem bjóða upp á fleiri en eina vegalengd.

Heldur hópurinn sín/sitt eigin/eigið hlaup: Hópurinn aðstoðar við að skipuleggja og halda Árbæjarhlaupið, sem verið er að enduvekja þessa dagana sem alvöru keppnishlaup.

Er félagslíf hjá hópnum utan við venjulegar hlaupaæfingar og hvað þá helst: Haldin er árshátíð í febrúar og haustfagnaður eftir haustmaraþonið. Þess á milli eru ýmis tilefni notuð til að koma saman og eiga skemmtilega stund saman.

Heldur hópurinn úti vefsíðu og hver er slóðin: Hópurinn er með síðu á Facebook.

Annað áhugavert: Árbæjarskokk getur vart talist til stærri hlaupahópa en fyrir vikið er hann mjög samheldinn og þar ríkir mjög góður andi og vinátta. Við tökum vel á móti öllum sem vilja leggja sig fram og ná árangri. Við hlaupum úti allan ársins hring og það fellur aldrei niður æfing.