Fara í efni

Aníta Hinriksdóttir á HM

Aníta var of eftirvæntingarfull í úrslitahlaupinu og fór of hratt af stað.
Aníta horfir fram á veginn
Aníta horfir fram á veginn

Aníta Hinriksdóttir náði ekki að ljúka úrslitahlaupinu í 800m á heimsmeistaramóti unglinga. Hún fór mjög hratt af stað en náði ekki að halda uppi þeim hraða og lauk ekki keppni. Hún átti greinlega erfitt með að stjórna spennustiginu í þetta sinn enda mikið í húfi. Aníta er svekkt út í sjálfa sig en hún á eftir að vinna úr þessu atviki, enda ung og áframtíðina fyrir sér og hún mun koma sterkari til baka, reynslunni ríkari. Við hjá Heilsutorgi óskum Anítu til hamingju með að hafa komist alla leið í úrslit á HM, það er gríðarlega stórt skref og mikill árangur. Takk fyrir að gleðja okkur með jákvæðri framkomu og að vera flottu fulltrúi Íslands á erlendri grundu.