Fara í efni

Á sumardaginn fyrsta fer fram 100. víðavangshlaup ÍR

Hlaup á sumardaginn fyrsta.
Á sumardaginn fyrsta fer fram 100. víðavangshlaup ÍR

Á sumardaginn fyrsta fer 100. Víðvangshlaup ÍR fram í miðbæ Reykjavíkur og gefst þá einstakt tækifæri til þess að spretta úr spori á nýrri og spennandi hlaupaleið sem hæfir ungum sem öldnum, skemmtiskokkurum sem og keppnishlaupurum.

Í tilefni þessa stórviðburðar ætla ÍR-ingar að blása til stórhátíðar en engin önnur íþróttakeppni hefur farið fram samfellt í svo langan tíma hér á landi.  

Skipuleggjendur búast við að hátt í 1500 manns muni spretta úr spori niður Laugarveginn við rífandi stemmingu tónlistar og hvatningar. Ætlunin er að endurvekja stemminguna sem var í árdaga þegar bæjarbúar flykktust í miðbæinn til þess að berja augum hetjurnar sem hlupu. Allir forskráðir krakkar undir 15 ára fá frítt í hlaupið í boði Lindex og því tilvalið að virkja alla fjölskyldumeðlimi til leiks.
 
Hlaupaleiðin er 5 km löng og liggur um hjarta borgarinnar. Dagskráin hefst með upphitun þátttakenda í Tryggvagötunni við hressandi tónlist kl. 11:30. Hlaupið er ræst kl. 12:00 í Tryggvagötunni og m.a. hlaupið upp Hverfisgötuna, niður Laugaveginn og umhverfis Tjörnina áleiðis í mark við Arnarhól. Allir hlauparar fá Powerade drykk þegar í mark er komið en hlaupið er hluti af Powerade sumarmótaröðinni  Auk þess fá allir verðlaunapening.
 
Við Arnarhól verður þátttakendum og starfsmönnum boðið til grillveislu þar sem meðal annars verður boðið upp á kók í gleri frá Vífilfelli en kók í gleri fagnar 100 ára afmæli í ár. Fjöldi útdráttarverðlauna og mikil stemning og stuð í bænum sem Landsbankinn hefur veg og vanda að. Upplagt er að enda daginn á sundferð, en ÍTR býður öllum þátttakendum í sund að loknu hlaupi.
 
ÍR-ingar hvetja fjölskyldur til að taka sig saman og fjölmenna í þennan einstaka viðburð sem ekki hefur fallið niður í 100 ár. Víðavangshlaup ÍR er í senn viðburður sem hæfir öllum sem vilja gera sér dagamun og taka þátt í afmælishátíðinni. Fyrir keppnishlaupara er hlaupið jafnframt Íslandsmeistaramót í 5 km götuhlaupi.
 
Allar nánari upplýsingar um skráningu og dagskrá er að finna á heimasíðu hlaupsins og á Facebook síðu hlaupsins.