Fara í efni

Nýtt Man tölublað er komið út

Skemmtilegt blað og fullt af fróðleik og hressandi efni.
Nýtt Man tölublað er komið út

Nældu þér í eintak á næsta sölustað. 

Helga Braga Jónsdóttir prýðir forsíðu maí tölublaðs MAN og sýnir á sér nýja hlið í einlægu viðtali. Hún talar þar um leit sína að innri frið, árangurslausar tilraunir sínar til að verða móðir, sambandsslit, hið andlega ferðalag sem hún hélt í til að sætta sig við sjálfa sig og erfiðar reynslur úr fortíðinni og margt fleira.

Í dag segist Helga sáttari en hún hefur áður verið auk þess sem hún hætti að drekka áfengi árið 2006 og hefur verið grænmetisæta frá aldamótum. „Já, mér líður mikið betur fimmtug en fertug. Það voru meiri konfkliktar, þá var ég enn í þessu sambandi en svo hef ég verið í öðru sambandi og það koma fleiri. Skilnaðurinn var vissulega erfiður en algjörlega rétt ákvörðun og við erum vinir í dag en hvorugt eignuðumst við börn þrátt fyrir allar tilraunirnar, það er bara okkar karma.“

Ótal margt fleira skemmtilegt er að finna í blaðinu. Tryggðu þér eintak.