Fara í efni

H Ú S R Á Ð: 17 óvenjuleg ráð með kaffi

Ég get ekki ímyndað mér lífið án kaffis og kæmist hreinlega ekki í gegnum daginn á nokkurra bolla.
H Ú S R Á Ð: 17 óvenjuleg ráð með kaffi

Ég get ekki ímyndað mér lífið án kaffis og kæmist hreinlega ekki í gegnum daginn á nokkurra bolla. Þá þykir mér fátt betra enn hreint hús fyllt af dýrindis kaffiilmi nema þá kannski að vera vakin upp með rjúkandi bolla af kaffi, af brosandi eiginmanninum.

En þær eru margar fleiri ástæðurnar til að réttlæta kaffifíknina og eiga ávallt nóg af því í skápunum.

Hér eru nokkrar mjög áhugaverðar ástæður og margar þeirra hafði ég ekki hugmynd um þótt aðrar hafi ég notað nú um skeið með góðum árangri:

 

Kaffi gerir hárið fallegra

Hver vill ekki hafa fallegra og meira gljáandi hár? Kaffi er góður náttúrulegur gljá-gjafi og það getur varla verið einfaldara. Helltu uppá verulega sterkt kaffi, kældu það og settu það síðan í þurrt og hreint hárið. Leyfðu því að vera í hárinu í að minnsta kosti 20 mínútur áður enn þú skolar það. Gerðu þetta í allt að einu sinni í viku til að fá besta árangurinn.

Litaðu hárið með kaffi

Hin náttúrulegu litarefni í kaffi gera það að frábærum kosti til að lita eitt og annað. Þar á meðal hárið á þér. Ef þú notar kaffi til að setja meiri gljáa í hárið regulega, gæti hárið dökknað tímabundið. En þar sem kaffi er ekki fastur litur, helst hann ekki lengur enn til næsta hárþvotts.

Litun á efnum

Það koma mjög skemmtileg áhrif bæði á efni og pappír þegar maður litar með kaffi. En eins og áður sagði þá er þetta ekki fastur litur þannig að það er best að nota þessa litunaraðferð á hluti sem ekki eiga eftir að blotna í framtíðinni. Þá notar maður uppáhellt kaffi og pensil eða hreinlega dýfir efninu í það.

Litar og fyllir uppí rispur

Rispur á viðarhúsgögnum hverfa nær samstundis með því að nudda smá kaffiþykkni í þær. Blandaðu þá skyndikaffi með smá dropa af vatni til að búa til klístur. Endurtaktu yfir rispuna þar til hún er eins á litin og viðurinn í kring.

Eyðir vondri lykt úr ísskápnum

Heldurðu að kaffiilmur væri nú ekki töluvert betri enn lyktin af kannski viku gömlum afgöngum eða grænmeti sem er farið að skemmast í gleymsku botnskúffunnar? Gamlir ísskápar eiga það til að lykta ávallt mjög undarlega þrátt fyrir öll heimsins þrif en þar getur ferskt kaffiduftið komið til aðstoðar. Þú setur ónotað kaffi í skál eða bolla og geymir inn í  ísskápnum og hreint kaffiduftið mun draga í sig ólyktina og þig mun langa í ferskan bolla í hvert sinn sem þú opnar ísskápinn. Að sjálfsögðu dugar þetta ráð í aðrar hirslur líka.

Eyðir ólykt af höndum

Hvítlaukur, fiskur og allskonar krydd ilma dásamlega á meðan þú eldar en nokkrum klukkutímum seinna þegar þú ert búin að komast að því að handsápa virkar ekki til að eyða lyktinni af höndunum, er lyktin af þeim orðin leiðinleg og hreint ekki góð. Þá er nú gott að geta gripið í notaðan kaffikorg og nudda þeim á hendurnar og skola síðan með volgu vatni.

Góður skrúbbur í eldhúsinu

Notaður kaffikorgur er fullkominn til að skrúbba eldhúsborðin, vaskinn og eldavélina. Örlítið hrjúfur og súr, hreinsar hann upp allt sem heitir fastar leifar.

Gott við eldstæðahreinsun

Eins og þeir vita sem eiga kamínur eða eldstæði, getur það verið ansi andstyggilegt að hreinsa til í þeim og kringum þau án þess að að það þyrlist ekki upp aska og setjist á allt í stofunni. En þá getur rakur, notaður kaffikorgur verið hjálplegur. Bíðið eftir að það eru kulnaðar glóðirnar og dreifið rökum korginum yfir öskuna. Leyfið þessu að vera í ca. 15 mínútur og skóflið síðan öllu upp í öskufatið. Korgurinn bindur sig við skraufaþurra öskuna og kemur í veg fyrir að hún þyrlist upp eins mikið.

Gera moltuna næringarríkari

Það er ástæða fyrir þvi að svo margt garðyrkjufólk telur mikilvægt að setja  kaffikorginn með í ...LESTU MEIRA