Fara í efni

Víðavangshlaup, góð þjálfun og veruleg áskorun

Víðavangshlaup í hefðbundnum skilningi eru almennt haldin á margs konar undirlagi.
Afreksvörur & Newton eru kostunaraðilar hlaups
Afreksvörur & Newton eru kostunaraðilar hlaups

Víðavangshlaup, góð þjálfun og veruleg áskorun

Víðavangshlaup í hefðbundnum skilningi eru almennt haldin á margs konar undirlagi, oftast á grasi en einnig í möl, mold, drullu og sandi. Í þeim er gjarna að finna brekkur, beygjur og sveigjur og þannig má segja að þau reyni ekki aðeins á úthald og hraða heldur einnig á styrk, útsjónarsemi og skynsama nýtingu á "púðrinu". Oftast er viðhaft hringhlaupafyrirkomulag og hringirnir oft 1-3 km að lengd sem gerir víðavangshlaup oft mjög skemmtileg fyrir áhorfendur þar sem hlaupararnir koma oft framhjá.

Hollvinasamtökin Framfarir hafa í samstarfi við Afreksvörur haldið víðavangshlauparöð á hverju hausti síðan árið 2004, undir merkjum New Balance, Saucony og nú Newton Running. Að undanteknu fyrsta árinu hafa hlaupin verið haldin með því sniði að hafa bæði “stutta” og “langa” vegalengd. Stutta hlaupið er yfirleitt um og undir 1 km og það langa 5-6 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri úr öllum áttum. Þannig hafa stuttu hlaupin verið sérstaklega vinsæl hjá yngri krökkunum, þó að þeir séu farnir að koma skemtilega á óvart í lengri hlaupunum líka. Hlauparar úr hlaupahópum sem hafa mætt í víðavangshlauparöðina hafa látið vel af keppninni og talið hana vera jákvæða viðbót við sínar æfingar og keppnisreynslu.

Dagsetningar og staðsetningar víðavangshlauparaðar Newton Running og Framfara haustið 2014 eru sem hér segir:

4. október við Rauðavatn

11. október við Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar í Fossvogi

1. nóvember við Vífilsstaðaspítala

8. nóvember við Borgarspítalann

Nánari upplýsingar er að finna á www.heilsutorg.is og www.hlaup.is.